![]() Aðalfundur trúfélagsins Zen á Íslandi - Nátthaga verður haldinn laugardaginn 20. maí næstkomandi kl. 10:00 í húsakynnum félagsins að Kletthálsi 1, 2.hæð. Dagskrá aðalfundarins er sem hér segir: 1. Skýrsla stjórnar 2. Skýrsla gjaldkera 3. Kosning forstöðumanns 4. Kosning stjórnar 5. Önnur mál Við munum sitja hugleiðslu frá kl. 8:00 og aðalfundurinn hefst kl. 10:00. Í anda Zen.
0 Comments
![]() Næstkomandi laugardag 15. apríl 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Hvert er hugrekki munksins í stagbætta kuflinum?“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. Að sækja sjóinn án þess að hræðast sæskrímsli djúphafsins er hugrekki sjómannsins. Að ferðast um lendur jarðar án þess að hræðast tígrísdýr er hugrekki veiðimannsins. Að mæta brugðnu sverði og horfast í augu við dauðann, sem hluta af lífinu, er hugrekki hermannsins. Hvert er hugrekki munnksins í stagbætta kuflinum? Eftir stundarþögn sagði Dogen: Búið ykkur hvílu og sofið; takið fram matarskálarnar og borðið hrísgrjón; andið út um nefið; látið augun ljóma. Vitið þið að það er nokkuð sem fer handan? Borðið mikið af hrísgrjónum af krafti og farið svo á klósettið. Sjáið í gegn um ykkar eigin vangaveltur um að öðlast í framtíðinni uppljómun frá Gautama. Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll. ![]() Næstkomandi laugardag, 1. apríl höldum við upp á afmæli Búdda á Kletthálsinum. Hugleiðsla hefst kl. 08.00 og sitjum við saman í þögninni í 35 mínútur. Síðan höldum við fallega athöfn í Zendóinu þar sem við förum upp að altarinu og laugum Búdda vatni. Með athöfninni minnumst við fæðingu Búdda. Athöfnin tekur um 30 mínútur. Við hvetjum ykkur til að bjóða fjölskyldu og/eða vinum að skyggnast inn í okkar iðkun og upplifa styrkinn og einlægnina sem einkennir okkar athafnir. Það væri líka sérstaklega gaman að sjá eldri iðkendur sem ekki hafa komið lengi. Eftir athöfnina höldum við afmælisveislu þar sem hver og einn leggur til eitthvað gómsætt svo úr verður dýrindis veisluborð að vanda. Þrjár djúpar beygjur. Gassho. ![]() Næstkomandi laugardag 18. mars 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Eins og að fálma eftir koddanum um miðja nótt“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. Um miðja nótt skynjarðu að koddinn hefur færst til undan höfðinu. Í svefnrofunum réttir þú út höndina og fálmar eftir honum. Engin fyrirstaða ekkert hik, eins og móðir sem hjúkrar barni sínu. Nóttin er móðir sem vakir og hlustar eftir andardrætti barns síns. Nóttin hefur þúsund hendur og þúsund augu og strýkur þér af alúð um vangann og hvíslar í eyra þér, eins og hægur andvari sem gælir við vindhörpu og sendir blíða tóna út í náttmyrkrið: „Það er allt í lagi“. Þú opnar hönd hugans og gefur þig á vald nóttinni. Á slíkri stundu veistu að það er enginn sem heyrir og ekkert að heyra, enginn sem sér og ekkert að sjá. Þú finnur koddann, brýtur mjúklega upp á hornið og kemur honum þægilega fyrir undir höfðinu. Eins og móðir sem breiðir yfir barn sitt. -Zenki Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll. ![]() Næsta laugardag 4. mars mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá textann „Hver er þinn kennari?“ eftir Kobun Chino-roshi, í þýðingu Óskars Daian Tenshin Ingólfssonar. Í textanum segir: „Viska kemur ekki frá ákveðnum stað. Hún er alltaf til staðar, í formi vakningar. Hún er ávallt bæði hér og þar. Allsstaðar! Það sem þú getur gert er að lyfta hulunni eða opinberað viskuna. “ Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest. ![]() Næstkomandi laugardag 11. febrúar 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Tvær örvar sem mætast á lofti“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. „Hið algilda og hið afstæða vinna saman, eins og tvær örvar sem mætast á lofti.” sagði kínverski zenmeistarin Sekito Kisen í einni af þeim sútrum sem kyrjaðar eru í zenklaustrum og zen-iðkunarstöðum um allan heim. Sútran, eða ljóðið, heitir Samsemd eins og margs og tjáir veruleikann okkar allra á myndrænan hátt og af mikilli alúð. Hvernig getum við lært að lifa í sátt og samlyndi? - Zenki Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll. ![]() Næsta laugardag 21. janúar mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá textann „Líf þitt er allt sem á vegi þínum verður“ eftir Kosho Uchiyama-roshi, í þýðingu Óskars Daian Tenshin Ingólfssonar. Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest. Um efni leshringsins segir Zenki: „Það er sérstaklega gaman að fá tækifæri til að lesa texta í þýðingu Óskars Daian og minnast hans í leiðinni. Óskar var einn af þeim sem tók svo fallega á móti mér þegar ég fór að venja komu mína til Nátthaga. Hann er einn af mínum fyrirmyndum og ég sakna hans mikið. “ ![]() Næstkomandi laugardag 14. janúar 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Eins og fremri og aftari fótur á göngu“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. Hvernig getum við lært að ganga í friði og lagt þannig lóð á vogarskálar friðar og jafnréttis? Það er mikilvægt að þekkja sitt eigið göngulag. Því manneskja sem þekkir djúplega sitt eigið göngulag gengur í friði og færir ljós inn í allar aðstæður og hvert skref græðir og nærir. Úr friðarsporum spretta blóm umburðarlyndis og kærleika gagnvart okkur sjálfum, náttúrunni og okkar samferðafólki. Slík manneskja sér hið smáa í því stóra og hið stóra í því smáa og skilur djúplega að allt í heiminum er samtengt, samofið í eina lifandi heild. - Zenki Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll. ![]() Rohatsu er japanska og vísar til dags uppljómunar Búdda. Hefð er fyrir því að halda daginn hátíðlegan og sitja hugleiðslu inn í nóttina. Við hjá Zen á Íslandi - Nátthaga sitjum því hugleiðslu frá kl. 21:00 föstudagskvöldið 2. desember næstkomandi og til kl. 1:00 aðfararnótt laugardagsins. Dagur uppljómunar Búdda er hátíðisdagur allra búddista. Þá höldum við uppá að Siddhartha Gautama uppljómaðist sem Shakyamuni Búdda. Sagan á bak við þennan dag uppljómunar er í raun saga búddismans. Hún er líka saga um andlegt ferðalag venjulegs manns til uppljómunar, svo og saga kennslu hans og þeirra aðferða sem hann kenndi okkur til að lifa lífinu. Þegar þessi maður, Siddhartha Gautama, fann leiðina til uppljómunar þá leiddist hann af braut þjáningar og endurfæðingar, inn á braut uppljómunar og varð þá þekktur sem hinn uppljómaði, Shakyamuni Búdda, eða bara Búdda. Iðkendur sem ekki hafa setið Rohatsu velta því gjarnan fyrir sér hvort þetta sé ekki langur tími til að iðka sitjandi hugleiðslu, í 4 klukkustundir. En reyndin er sú, að sögn þeirra sem áður hafa setið Rohatsu, að tíminn breytist þegar maður situr zazen í langan tíma. Klukkustund getur virst sem tuttugu mínútur og tuttugu mínútur geta virst sem klukkustund. Við viljum því hvetja alla iðkendur til að mæta og upplifa Rohatsu með okkur núna í byrjun desember mánaðar. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, en það er engin seta laugardagsmorguninn á eftir. ![]() Næstkomandi laugardag 19. nóvember 2022 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn "Steinkona fæðir barn um nótt" að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. Birting þessarar stundar hefur alltaf verið og mun alltaf vera handan þess sem við getum skilið. Allur heimurinn birtist samtímis hér og nú og á sér hvorki fortíð né framtíð. Japanski zenmeistarinn Fuyo Dokai tjáði handanleika tilverunnar með því að segja: „Fjöllin bláu ganga án afláts; steinkona fæðir barn um nótt.“ Hvað átti hann við? -Zenki Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll. |
Eldra
March 2025
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |