• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Fréttir og tilkynningar

Eins og að fálma eftir ... Fyrirlestur á Kletthálsi og fésbók

15/3/2023

0 Comments

 
Picture
Næstkomandi laugardag 18. mars 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Eins og að fálma eftir koddanum um miðja nótt“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15.


​

Um miðja nótt skynjarðu að koddinn hefur færst til undan höfðinu. Í svefnrofunum réttir þú út höndina og fálmar eftir honum. Engin fyrirstaða ekkert hik, eins og móðir sem hjúkrar barni sínu.

Nóttin er móðir sem vakir og hlustar eftir andardrætti barns síns. Nóttin hefur þúsund hendur og þúsund augu og strýkur þér af alúð um vangann og hvíslar í eyra þér, eins og hægur andvari sem gælir við vindhörpu og sendir blíða tóna út í náttmyrkrið: „Það er allt í lagi“. 

Þú opnar hönd hugans og gefur þig á vald nóttinni. Á slíkri stundu veistu að það er enginn sem heyrir og ekkert að heyra, enginn sem sér og ekkert að sjá.

Þú finnur koddann, brýtur mjúklega upp á hornið og kemur honum þægilega fyrir undir höfðinu. Eins og móðir sem breiðir yfir barn sitt.

-Zenki

Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. 

Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.

0 Comments

Hver er þinn kennari? - leshringur 4. mars 2023

2/3/2023

0 Comments

 
Picture
Næsta laugardag 4. mars mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá textann „Hver er þinn kennari?“ eftir Kobun Chino-roshi, í þýðingu Óskars Daian Tenshin Ingólfssonar.

Í textanum segir: „Viska kemur ekki frá ákveðnum stað. Hún er alltaf til staðar, í formi vakningar. Hún er ávallt bæði hér og þar. Allsstaðar! Það sem þú getur gert er að lyfta hulunni eða opinberað viskuna. ​“

Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.

0 Comments

Tvær örvar ... Fyrirlestur á Kletthálsi og fésbók.

7/2/2023

0 Comments

 
Picture
Næstkomandi laugardag 11. febrúar 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Tvær örvar sem mætast á lofti“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15.

​


„Hið algilda og hið afstæða vinna saman, eins og tvær örvar sem mætast á lofti.” sagði kínverski zenmeistarin Sekito Kisen í einni af þeim sútrum sem kyrjaðar eru í zenklaustrum og zen-iðkunarstöðum um allan heim. 

Sútran, eða ljóðið, heitir Samsemd eins og margs og tjáir veruleikann okkar allra á myndrænan hátt og af mikilli alúð.

Hvernig getum við lært að lifa í sátt og samlyndi?


- Zenki

Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. 

Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.

0 Comments

Líf þitt er allt sem á vegi þínum verður - leshringur

18/1/2023

0 Comments

 
Picture
Næsta laugardag 21. janúar mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá textann „Líf þitt er allt sem á vegi þínum verður“ eftir Kosho Uchiyama-roshi, í þýðingu Óskars Daian Tenshin Ingólfssonar. Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Um efni leshringsins segir Zenki:
„Það er sérstaklega gaman að fá tækifæri til að lesa texta í þýðingu Óskars Daian og minnast hans í leiðinni. Óskar var einn af þeim sem tók svo fallega á móti mér þegar ég fór að venja komu mína til Nátthaga. Hann er einn af mínum fyrirmyndum og ég sakna hans mikið. “

0 Comments

Eins og fremri og aftari ... Fyrirlestur á Kletthálsi og fésbók

10/1/2023

0 Comments

 
Picture
Næstkomandi laugardag 14. janúar 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Eins og fremri og aftari fótur á göngu“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15.
Hvernig getum við lært að ganga í friði og lagt þannig lóð á vogarskálar friðar og jafnréttis?

Það er mikilvægt að þekkja sitt eigið göngulag. Því manneskja sem þekkir djúplega sitt eigið göngulag gengur í friði og færir ljós inn í allar aðstæður og hvert skref græðir og nærir. Úr friðarsporum spretta blóm umburðarlyndis og kærleika gagnvart okkur sjálfum, náttúrunni og okkar samferðafólki.

Slík manneskja sér hið smáa í því stóra og hið stóra í því smáa og skilur djúplega að allt í heiminum er samtengt, samofið í eina lifandi heild.

- Zenki


Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. 

Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.

0 Comments

Rohatsu - Dagur uppljómunar, 2. desember 2022

26/11/2022

0 Comments

 
Picture
Rohatsu er japanska og vísar til dags uppljómunar Búdda. Hefð er fyrir því að halda daginn hátíðlegan og sitja hugleiðslu inn í nóttina. Við hjá Zen á Íslandi - Nátthaga sitjum því hugleiðslu frá kl. 21:00 föstudagskvöldið 2. desember næstkomandi og til kl. 1:00 aðfararnótt laugardagsins.

Dagur uppljómunar Búdda er hátíðisdagur allra búddista. Þá höldum við uppá að Siddhartha Gautama uppljómaðist sem Shakyamuni Búdda. Sagan á bak við þennan dag uppljómunar er í raun saga búddismans. Hún er líka saga um andlegt ferðalag venjulegs manns til uppljómunar, svo og saga kennslu hans og þeirra aðferða sem hann kenndi okkur til að lifa lífinu. Þegar þessi maður, Siddhartha Gautama, fann leiðina til uppljómunar þá leiddist hann af braut þjáningar og endurfæðingar, inn á braut uppljómunar og varð þá þekktur sem hinn uppljómaði, Shakyamuni Búdda, eða bara Búdda.

​

Iðkendur sem ekki hafa setið Rohatsu velta því gjarnan fyrir sér hvort þetta sé ekki langur tími til að iðka sitjandi hugleiðslu, í 4 klukkustundir. En reyndin er sú, að sögn þeirra sem áður hafa setið Rohatsu, að tíminn breytist þegar maður situr zazen í langan tíma. Klukkustund getur virst sem tuttugu mínútur og tuttugu mínútur geta virst sem klukkustund. Við viljum því hvetja alla iðkendur til að mæta og upplifa Rohatsu með okkur núna í byrjun desember mánaðar.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, en það er engin seta laugardagsmorguninn á eftir.

0 Comments

Steinkona fæðir... Fyrirlestur á Kletthálsi og á fésbókinni

14/11/2022

1 Comment

 
Picture
Næstkomandi laugardag 19. nóvember 2022 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn "Steinkona fæðir barn um nótt" að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15.


Birting þessarar stundar hefur alltaf verið og mun alltaf vera handan þess sem við getum skilið. Allur heimurinn birtist samtímis hér og nú og á sér hvorki fortíð né framtíð.

Japanski zenmeistarinn Fuyo Dokai tjáði handanleika tilverunnar með því að segja: „Fjöllin bláu ganga án afláts; steinkona fæðir barn um nótt.“

Hvað átti hann við?
​

-Zenki

Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. 

Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.

1 Comment

Að snúa ljóma ykkar innávið - Leshringur næsta laugardag

10/11/2022

0 Comments

 
Næsta laugardag 12. nóvember mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá kaflann "Að snúa ljóma ykkar innávið" úr bókinni "Ekkert upphaf, enginn endir" eftir Jakusho Kwong-roshi, í þýðingu Brynjars Shoshin. Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Picture
Í kaflanum segir meðal annars:

"Það myndi varla trufla nokkuð ef ský tækju að birtast á himninum, rétt eins og það myndi varla trufla að ótal öldur birtust í hafinu. Einmitt þetta er lífsvirkni himins / hafs. Hið upphafslausa rými, hið takmarkalausa fagurbláa himinn / haf – tómið, með því á ég við ótakmarkaða, tæra, eðlilega vitund – meðtekur það allt fyrirhafnarlaust. Þetta er hugur ykkar, kjarni sjálfseðlis ykkar án takmarkanna, ekkert upphaf, enginn endir. Þetta er ljómi ykkar upprunalega huga."
​
Djúpt Gassho.
0 Comments

Lífsgefandi lífsgildi Búdda - leshringur laugardag 29. október

28/10/2022

0 Comments

 
Picture
Næsta laugardag 29. október mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Vð lesum kafla í þýðingu Brynjars Shoshin, úr bókinni “Ekkert upphaf, enginn endir” eftir Jakusho Kwong-roshi. Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Öll eru velkomin og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Í kaflanum kemur meðal annars þetta fram: „Þegar við viðhöldum lífsgildunum og anda lífsgildanna í því hvernig við göngum, hvernig við sitjum, hvernig við borðum, hvernig við tölum og hvernig við tengjumst hvert öðru og umhverfi okkar þá færir stöðug nærvera þeirra ljós inn í líf okkar.“


0 Comments

Borgarsesshin Zen á Íslandi

6/10/2022

0 Comments

 
Picture
​Sesshin hugleiðsludagar Nátthaga hefjast miðvikudaginn 12. október og standa til og með laugardagsins 15. október í aðsetri Zen á Íslandi að Kletthálsi 1, 2. hæð. Eins og venja hefur skapast fyrir þá höldum við Borgarsesshin á haustin, þar sem við leitumst við að færa anda iðkunarinnar inn í amstur hversdagsins. Þátttökugjald á sesshin er 10.000 krónur Þeir sem ekki geta tekið þátt í öllum setunum eru beðnir um að láta vita að hve miklu leyti þeir munu taka þátt.  SKRÁNING FER FRAM Á ZEN@ZEN.IS

Sesshin hefst miðvikudagskvöldið 12. október kl. 19:30 með sitjandi hugleiðslu, inngangsorðum og leiðbeiningum til þátttakenda. Laugardaginn 15. október stendur dagskráin frá kl. 07:00 - 15:15. Oryoki máltíð mun fara fram á laugardeginum. ​

​* Full dagskrá Borgarsesshins er  fyrir neðan myndina.


Miðvikudagur 12. október
​19:30 Zazen (sitjandi hugleiðsla)
20:05 Kinhin (gönguhugleiðsla)
20:15 Zazen
20:50 Heitin fjögur
Fimmtudagur - Föstudagur
07:00 Zazen
07:35 Kinhin
07:45 Zazen
08:20 Kyrjun - Iðkun í dagsins önn
19:30 Zazen
20:00 Kinhin
20:10 Zazen
20:40 Heitin fjögur
Laugardagur 15. október
07:00 Zazen
07:35 Kinhin
07:45 Zazen
08:20 Kyrjun - Oryoki - Hlé
10:00 Samu / Vinnuiðkun
10:45 Morgunkaffi
11:15 Zazen
11:45 Kinhin
11:55 Zazen
12:25 Kyrjun - Oryoki - Hlé
13:45 Zazen
14:15 Kinhin
14:45 Zazen
15:15 Heitin fjögur-Kveðjuhringur

0 Comments
<<Previous

    Eldra

    March 2023
    February 2023
    January 2023
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    August 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013

    Höfundur

    Zen á Íslandi

    Efni

    All

    RSS Feed

Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð