0 Comments
Næstkomandi laugardag 30. apríl 2022 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja darmaræðuna "Um daginn og veginn" í húsnæði okkar að Kletthálsi 1, 2. hæð og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Ræðan er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. En hann segir:
"Við eigum það öll sameiginlegt að vita í raun ekki hvað dagurinn ber í skauti sér eða hvað á vegi okkar verður. Framvinda dagsins og hinn hlykkjótti vegur er okkur hulin hvort sem okkur líkar betur eða verr. „Lífið er sitt eigið undur” eins og japanski zen meistarinn Shunryu Suzuki orðaði það. Við blekkjum okkur með því að halda því fram að við höfum einhverja stjórn á framvindu lífsins og okkur finnst við vera sjálf að lifa lífinu í eigin krafti en sannleikurinn er sá að lífið lifir okkur. Japanski zen meistarinn Dogen Zenji sagði: „Að við lifum í krafti okkar sjálfra og skiljum allt er blekking. Að lífið birtist og skilur sig sjálft er uppljómun". Að sleppa tökunum og stíga skref afturábak, kallast að vakna til lífsins, að vera með lífinu eins og lífið vill vera með þér. Í ljósi aðstæðna í heiminum í dag er það einmitt það sem við þurfum hvað mest á að halda, að vakna til lífsins. Við getum ekki látið aðra vakna til lífsins, við getum einungis vaknað sjálf. Þess vegna er framtíðin í þínum höndum." Til blessunar öllu lífi. Á morgun, laugardaginn 9. apríl verður haldin Jukai athöfn hjá Zen á Íslandi - Nátthaga að Kletthálsi 1, 2. hæð. Það eru tveir iðkendur sem taka Jukai á morgun, en með því taka þeir lífsgildin sem sín grunngildi í lífinu, og þar með skýra afstöðu með lífinu og gegn hverskyns ofbeldi og óréttlæti. Við munum einnig halda upp á afmæli Búdda þennan laugardag, en það gerum við með því að fara upp að altarinu og lauga Búdda vatni undir kyrjun söngunnar. Báðar þessar athafnir eru blátt áfram og fallegar og benda á lífið í sinni tærustu mynd. Í von um að sjá ykkur sem flest, djúpt Gassho. Við byrjum Jukai athöfnina klukkan 10. Látum hér fylgja með kennslu úr bókinni How to Cook Your Life eftir Dōgen og Kosho Uchiyama-roshi:
"Það mun alltaf vera hellingur af hlutum sem við þurfum að gera. Við munum aldrei ná að koma lífinu, né heldur vinnunni eða bara eldhúsinu okkar, í þannig ástand að við séum bara sátt. Við getum aldrei staðið undir þeim væntinum sem við sjálf gerum. Það er alltaf eitthvað sem má betur fara. Lífið er ekki fyrirfram ákveðið og við komumst því aldrei til enda, þar sem við gætum bara sest niður og horft sátt yfir. Það eina sem gerist, þegar tíminn líður, er að við höfum betri og betri skilning á hlutunum, við sjáum lífið sífellt skýrar og geta okkar til að takast á við óvænta atburði sem koma upp verður betri og betri. Og það mun alltaf eitthvað koma upp, alltaf. Heiður himininn er sífellt að búa til ný ský. Potturinn sýður stanslaust." Þrjár djúpar beygjur. Gassho. |
Eldra
December 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |