• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Fréttir og tilkynningar

Borgarsesshin 2019 - Að leita skjóls

29/9/2019

0 Comments

 
Sesshin hugleiðsludagar Nátthaga hefjast næsta miðvikudag 2. október og standa til og með laugar-dagsins 5. október í aðsetri Zen á Íslandi að Kletthálsi 1, 2. hæð. Eins og venja hefur skapast fyrir þá höldum við Borgarsesshin á haustin, þar sem við leitumst við að færa anda iðkunarinnar inn í amstur hversdagsins.

SKRÁNING Á KLETTHÁLSINUM OG ZEN@ZEN.IS

Þátttökugjald á sesshin er 8.000 krónur og skráning fer fram á Kletthálsinum eða með því að senda tölvupóst á zen@zen.is.​ Þeir sem ekki geta tekið þátt í öllum setunum eru beðnir um að láta vita að hve miklu leyti þeir munu taka þátt. Hægt að taka þátt aðeins á laugardeginum og kostar það 5.000 kr. Athugið líka að þeir sem greiða árgjald fá 10% afslátt af þátttökugjaldi. 
​
Sesshin hefst miðvikudagskvöldið 2. október kl. 19:30 með sitjandi hugleiðslu, inngangsorðum og leiðbeiningum til þátttakenda. Síðan komum við saman næstu tvo daga, á morgnana frá kl. 07:00 - 08:30 og frá kl. 17:30 - 19:00, og síðan laugardaginn 5. október frá kl. 07:00 - 15:15. Oryoki máltíð mun fara fram á laugardeginum. ​Þeir sem ekki eiga oryoki skálar eru sömuleiðis beðnir um að láta vita við skráningu.

​Full dagskrá Borgarsesshins er hér fyrir neðan:
Picture
Miðvikudagur 2. október
​
19:30 Zazen
19:45 Leiðbeinandi opnun
20:05 Kinhin
20:15 Zazen
20:50 Heitin fjögur

Fimmtudagur - Föstudagur

07:00 Zazen
07:35 Kinhin
07:45 Zazen
08:20 Kyrjun - Iðkun í dagsins önn

17:30 Zazen
18:00 Kinhin
18:10 Zazen
18:40 Heitin fjögur

Laugardagur 5. október

07:00 Zazen
07:35 Kinhin
07:45 Zazen
08:20 Kyrjun - Oryoki - Hlé

10:00 Samu / Vinnuiðkun
10:45 Morgunkaffi

11:15 Zazen
11:45 Kinhin
11:55 Zazen
12:25 Kyrjun - Oryoki - Hlé

14:00 Zazen
14:30 Kinhin
14:40 Zazen
15:10 Heitin fjögur-Kveðjuhringur
0 Comments

Vegurinn heim - ferðasaga til japans í máli og myndum

24/9/2019

0 Comments

 
Næstkomandi laugardag 28. september kl. 10:00 í húsnæði Zen á Íslandi að Kletthálsi 1 munu Ástvaldur Zenki og Gyða Myoji segja sögu af ferðalagi sínu, þjálfun og zen iðkun í japönsku klaustri núna í sumar .
Picture
​Ástvaldur Zenki er sem sagt nýkominn heim eftir 3 mánaða iðkun og þjálfun í  Zen klaustrinu Toshoji  í Japan. Í  janúar 2018 afhenti Jakusho Kwong Roshi Zenki kennsluna til að miðla áfram sem Zen kennari og var dvölin í Japan liður í því ferli. Gyða Myoji, eiginkona Zenki og Zen nunna, dvaldi í Toshoji í einn mánuð og saman deila þau ferðasögu sinni með okkur á laugardaginn í máli og myndum.
​Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. Ferðasagan verður svo sögð frá kl. 10:00. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
0 Comments

Námskeið í Zen hugleiðslu

16/9/2019

0 Comments

 
Picture
Zazen, sem þýðir sitjandi hugleiðsla, byggir á öndun og vakandi huga. Iðkun zazen er grundvöllur þess sem í daglegu tali kallast núvitund (e. mindfulness) eða vakandi athygli. Með því að læra að iðka Zazen ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfa sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum.

Markmið námskeiðsins er m.a.:
  • Að kenna öndun og vakandi athygli í zazen, sitjandi hugleiðslu.
  • Að vinna með líkamann og auka líkamsvitund
  • Að útbúa stað heima hjá sér sem er ætlaður hugleiðslu.
  • Að byggja upp hugleiðslurútínu í daglegu lífi
  • Að læra hefðbundin iðkunarform í setusal Zen Búddista og iðka zazen með öðrum

Námskeiðið kostar 15.000,- kr. og verður kennt á fimmtudögum frá kl. 17:30-19:00. Innifalið í námskeiðsgjaldi er þátttaka í allri dagskrá hjá Nátthaga á meðan námskeiðið varir og eru þátttakendur eindregið hvattir til að prófa að taka þátt í daglegri iðkun samkvæmt dagskrá. Þátttakendum er einnig velkomið að taka þátt í fræðsluviðburðum sem boðið er upp á: leshringjum, darmaræðum og mörgu fleiru.

Kennarar á námskeiðinu eru Ástvaldur Zenki Sensei, sem hefur formlega lokið þjálfun og hlotið réttindi til kennslu innan Soto Zen hefðarinnar, ásamt Kolbeini Seido og Brynjari Shoshin sem hafa áralanga reynslu af hugleiðsluiðkun

Hvar: Klettháls 1, önnur hæð til hægri þegar komið er upp stigann.
Hvenær: Fimmtudagarnir 10., 17., 24. og 31. október. kl. 17:30-19:00.


Allir eru hjartanlega velkomnir í nýtt húsnæði okkar að Kletthálsi 1 og er námskeiðið óháð trúar- eða lífsskoðunum. Námskeiðið er ætlað byrjendum sem lengra komnum og öllum þeim sem þrá að lifa lífinu lifandi og með vakandi athygli.
​
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á zen@zen.is og greiða 15.000,- kr. námskeiðsgjald inn á reikning félagsins...

Kennitala: 491199-2539
Reikningsnúmer: 111-26-491199


...eða með því að kaupa námskeiðið sem vöru í vefverslun Zen á Íslandi - Nátthaga hér á vef félagsins með því að smella á hnappinn hér að neðan:
​
Kaupa skráningu á Námskeið í Zen hugleiðslu
0 Comments

Viðtal við Zenki og Myoji um japansför

16/9/2019

0 Comments

 
Ástvaldur Zenki og Gyða Myoji voru í viðtali hjá Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í þættinum Gestaboð á Rás 1 síðasta laugardag. En Ástvaldur Zenki er á leiðinni að verða fyrstur íslendinga til að verða Zen kennari. Sem hluti af undirbúningi fyrir það fór hann til Japans í sumar og iðkaði í Zen klaustri og var svo ábóti í tveimur æðstu klaustrum Zen búddista. Í viðtalinu við Sigurlaugu segja þau Gyða Myoji frá þessu ferðalagi sínu. Njótið vel.
Picture
0 Comments

Haustdagskrá Zen á Íslandi - Nátthaga

12/9/2019

0 Comments

 
​Laugardaginn 7. september síðastliðinn hófst haustdagskrá Zen á Íslandi - Nátthaga með setu og kaffisamsæti í nýju og nýmáluðu húsnæði okkar að Kletthálsi 1.

En í haust munum við sitja hugleiðslu á 
hefðbundnum setutímum eins og hér segir:

​Mánudaga kl. 17:30

Þriðjudaga kl. 07:20
Miðvikudaga kl. 07:20
Fimmtudaga kl. 17:30
Föstudaga kl. 07:20
Laugardaga kl. 08:00
Picture
Á laugardögum eftir setu verður oft einhver frekari dagskrá eins og áður og sjá má nánar í haustdagskránni hér á vefnum. En til dæmis má nefna úr dagskrá haustsins ræður kennara okkar, leshringi, hugleiðsludaga sem kallast Borgarsesshin, dag vakandi athygli og námskeiðið Zen hugleiðsla sem haldið verður í október.

Verið öll innilega velkomin í hugleiðslu með okkur.
0 Comments

    Eldra

    January 2023
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    August 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013

    Höfundur

    Zen á Íslandi

    Efni

    All

    RSS Feed

Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð