• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Fréttir og tilkynningar

Rohatsu - miðnæturhugleiðsla

28/11/2016

0 Comments

 
Við höldum í heiðri uppljómunardag Búdda með Rohatsu (miðnæturhugleiðslu) á föstudaginn næstkomandi kl.24:00 - 04:00. Athugið að dagskrá laugardagsins fellur niður vegna þessa.
Uppljómunardagur Búdda er búddískur helgidagur til minningar um að Siddhartha Gautauma uppljómaðist á þessum degi. Í sex ár hafði Siddhartha ferðast um í leit að sannleikanum um þjáningu lífsins. Þessi leit hafði dregið hann inn í meinlætalíf munka svo hann leit út eins og lifandi beinagrind og upplifði hræðilegan sársauka og hungur. Þegar hann var nær dauða en lífi þá áttaði hann sig á að meinlæti væri ekki leiðin. Kvöldið fyrir 8. dag 12. mánaðar settist hann niður til að hugleiða, krosslagði fætur undir Bodhi-tré og hugðist ekki hreyfa legg né lið fyrr en hann hefði fundið sannleikann. Þegar leið á nóttina sá hann allt í einu sannleikann og það upplýstist fyrir honum hvernig allt líf fylgir orsök og afleiðingu og góðar gjörðir leiða mann frá þjáningunni. Siddharta varð nú Búdda, hinn uppljómaði.

Upp á þennan dag höldum við því með að sitja og hugleiða í 4 klukkustundir frá miðnætti fram undir morgun. Við hittumst á Grensásveginum föstudagskvöldið 2. desember undir miðnætti og sitjum inn í aðfararnótt laugardagsins 3. desember.
0 Comments

Að lifa í krafti heitstrengingar

9/11/2016

0 Comments

 
Leshringurinn um Heitstrengingu bodhisattvans heldur áfram för sinni næstkomandi laugardag, 12. nóvember kl. 10:15 - 11:15 í aðsetri Nátthaga að Grensásvegi 8. Við lesum saman næsta þátt í þýðingu Mikhaels Zentetsu á kennslu Shohaku Okumura um þetta efni. Í næsta kafla fjallar Okumura Roshi meðal annars um ljóð eftir Dainin Katagiri (1928-1990), stofnanda Minnesota Zen setursins, en þar gegndi Okumura Roshi stöðu ábóta um nokkurra ára skeið.

Allir eru velkomnir á leshringinn. Þátttökugjald er 1500 kr. fyrir hvert skipti en ókeypis er fyrir þá sem greiða árgjald.
0 Comments

Ræða á laugardaginn

2/11/2016

1 Comment

 
Picture
Laugardaginn 5. nóvember næstkomandi kl. 09:15-10:15 mun Ástvaldur Zenki, Zen prestur og aðstoðarkennari í Zen á Íslandi-Nátthaga halda ræðu um iðkun Zen búddismans á Íslandi í ljósi þriggja mánaða dvalar hans í Toshoji klaustrinu í Japan síðastliðið sumar. Zenki mun segja okkur frá dvöl sinni og því hvernig hún breytti sýn hans á Zen iðkun hér á landi og erindið sem Zen á við okkur hér og nú.

Allir eru velkomnir og athugið að aðgangur er ókeypis. Að venju hefst dagskráin með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. 




1 Comment

    Eldra

    April 2025
    March 2025
    February 2025
    January 2025
    December 2024
    November 2024
    September 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    December 2023
    November 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    May 2023
    April 2023
    March 2023
    February 2023
    January 2023
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    August 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013

    Höfundur

    Zen á Íslandi

    Efni

    All

    RSS Feed

Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539

Tölvupóstfang: [email protected]
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð