Zen á Íslandi - Nátthagi var formlega skráð sem trúfélag þann 14. júní 1999. Kennari trúfélagsins og ábóti er Jakusho Kwong-roshi. Fyrsti forstöðumaður var Óskar Daian Tenshin Ingólfsson. Markmið Zen á Íslandi – Nátthaga var og er að starfrækja og viðhalda iðkun Sótó Zen búddismans á Íslandi.
TIL VAKNINGAR, BLESSUNAR OG VERNDAR FYRIR ALLAR VERUR Aðsetur Nátthaga er að Kletthálsi 1, 110 Reykjavík.
|
Núverandi forstöðumaður er Alfred Chozetsu Bæhrenz Þórðarson. Kwong-roshi vígði þrjá meðlimi í Zen á Íslandi sem presta þann 12.október 2008, en það voru þau Helga Kimyo Jóakimsdóttir, Ástvaldur Zenki Traustason og Óskar Daian Tenshin Ingólfsson, sem lést í ágúst 2009. Þar með var þeim veitt umboð til þess að framkvæma trúarlegar athafnir innan trúfélagins og gegna leiðandi hlutverki í starfi þess. Í júní 2011 voru Helgu Kimyo og Ástvaldi Zenki veitt nafnbótin Hoshi (Dharma Holder) af Kwong-roshi og þar með gefið umboð til þess að sinna embættisstörfum. Í júlí 2011 bættist við fjórði presturinn þegar Mikhael Zentetsu Óskarsson var vígður af Kwong-roshi.
Fyrir formlega stofnun trúfélagsins hafði félagið, sem þá gekk venjulega undir nafninu Zen hópurinn, starfað óslitið frá árinu 1986 undir stjórn Kwong-roshi. Í fyrstu fór starfsemi hópsins fram í húsakynnum Guðspekifélagsins að Ingólfsstræti 22 og síðar til margra ára í húsakynnum á vegum Menningarmiðstöðvarinnar í Gerðubergi. Í janúar 2007 festi félagið kaup á húsnæðinu á Grensásvegi 8 og var félagið þar fram í mars 2019 þegar flutt var á Klettháls 1.
Trúfélagar í Zen á Íslandi voru um áramótin 2011 85. Þeir sem hafa formlega tekið búddísk heit eru um 30 en fjölmargir hafa iðkað Zen með okkur í gegnum árin til lengri eða skemmri tíma.

Trúariðkun Zen búddista kallast zazen, sem þýðir sitjandi hugleiðsla. Nátthagi býður félagsmönnum sínum og öllum öðrum að stunda zazen alla daga vikunnar nema sunnudaga. Félagið stendur einnig fyrir fyrirlestrum, leshringum, kynningum á hugleiðsluiðkun og lengri námskeiðum í Zen iðkun. Kennari Nátthaga, Zen meistarinn Jakusho Kwong-roshi kemur hingað til lands árlega til þess að leiðbeina og kenna nemendum sínum og leiða nokkurra daga samfellda dagskrá, þar sem nemendurnir iðka Zen sameiginlega í þögn frá morgni til kvölds. Roshi hefur einnig haldið fjölmarga opinbera fyrirlestra á því 30 ára tímabili sem hann hefur komið til Íslands.
Öllum er velkomið að taka þátt í starfi trúfélagsins Zen á Íslandi – Nátthaga, óháð trúarskoðunum. Þeir sem þess óska eru boðnir velkomnir í trúfélagið.
Öllum er velkomið að taka þátt í starfi trúfélagsins Zen á Íslandi – Nátthaga, óháð trúarskoðunum. Þeir sem þess óska eru boðnir velkomnir í trúfélagið.