• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Fréttir og tilkynningar

Námskeið í Zen hugleiðslu, vor 2021

20/1/2021

0 Comments

 
Picture
Iðkun zazen er grundvöllur þess sem í daglegu tali kallast núvitund (e. mindfulness) eða vakandi athygli. Með því að læra að iðka Zazen ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfan sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum.

Markmið námskeiðsins er m.a.:
  • Að kenna öndun og vakandi athygli í zazen, sitjandi hugleiðslu.
  • Að vinna með líkamann og auka líkamsvitund
  • Að útbúa stað heima hjá sér sem er ætlaður hugleiðslu.
  • Að byggja upp hugleiðslurútínu í daglegu lífi
  • Að læra hefðbundin iðkunarform í setusal Zen Búddista og iðka zazen með öðrum

Námskeiðið kostar 15.000,- kr. og verður kennt fjóra fimmtudaga frá kl. 17:30-19:00. Innifalið í námskeiðsgjaldi er þátttaka í allri dagskrá hjá Nátthaga á meðan námskeiðið varir og eru þátttakendur eindregið hvattir til að prófa að taka þátt í daglegri iðkun samkvæmt dagskrá. Þátttakendum er einnig velkomið að taka þátt í fræðsluviðburðum sem boðið er upp á: leshringjum, darmaræðum og mörgu fleiru.

Kennarar á námskeiðinu eru Ástvaldur Zenki, kennari Zen á Íslandi ásamt Gyðu Myoji og Kolbeini Seido sem hafa áralanga reynslu af hugleiðsluiðkun.

Hvar: Klettháls 1, önnur hæð til hægri þegar komið er upp stigann, og á Zoom.
Hvenær: Á fimmtudögum frá 28. janúar til 18. febrúar frá kl. 17:30 - 19:00.

*** Allt orðið fullt á Kletthálsi, bara Zoom eftir ***

*** ATHUGIÐ ***
Vegna COVID-19 faraldursins verður námskeiðið líka í boði með hjálp fjarfundabúnaðarins Zoom.
*** ATHUGIÐ ***

Allir eru hjartanlega velkomnir í nýtt húsnæði okkar að Kletthálsi 1 og er námskeiðið óháð trúar- eða lífsskoðunum. Námskeiðið er ætlað byrjendum sem og lengra komnum og öllum þeim sem þrá að lifa lífinu lifandi og með vakandi athygli.
​
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á [email protected] og greiða 15.000,- kr. námskeiðsgjald inn á reikning félagsins...

Kennitala: 491199-2539
Reikningsnúmer: 111-26-491199

...eða með því að kaupa námskeiðið sem vöru í vefverslun Zen á Íslandi - Nátthaga á vef félagsins með því að smella á hnappinn hér að neðan:
Kaupa skráningu á Námskeið í Zen hugleiðslu
​Djúpt Gassho.
0 Comments

Leshringur á Zoom næsta laugardag hjá Zen á Íslandi

14/1/2021

0 Comments

 
Næstkomandi laugardag 16. janúar mun Zen á Íslandi - Nátthaga halda leshring á Zoom. Við höldum áfram að lesa úr bókinni "Ekkert upphaf, enginn endir" eftir Jakusho Kwong-roshi í þýðingu Brynjars Shoshin. En í kafla laugardagsins segir Kwong-roshi meðal annars:
"Að afsala sér heiminum þýðir ekki að við snúum baki við honum. Það þýðir að við snúum baki við kringumstæð-unum sem skapa þjáningu – græðgi, reiði og fávísi – og uppgötvum að nýju í gegnum sitjandi hugleiðslu okkar eðlislæga sjálfstraust." -Kwong-roshi​
Picture
Við byrjum dagskrá laugardagsins með zazen, eða sitjandi hugleiðslu, kl. 9:00 og sitjum í 40 mínútur. Takið þátt í hugleiðslunni með því að smella á hnappinn hér að neðan, notist við neðangreint Zoom kenni eða hlekk. Síðasta haust fór Zoom að krefjast þess að gefið væri upp lykilnúmer og er það líka hér að neðan.

Hugleiðsla með Nátthaga
Zoom kenni: 847 6507 5564
Zoom lykilnúmer: 000000 (6 núll)
Zoom hlekkur: https://us02web.zoom.us/j/84765075564
Hugleiðsla hjá Nátthaga
Að hugleiðslunni lokinni hefst leshringurinn í beinu framhaldi kl. 9:45. Takið þátt í leshringnum með því að smella á hnappinn hér að neðan, notist við neðangreint Zoom kenni eða hlekk og lykilnúmer. Athugið að þetta er annað kenni en fyrir setuna hér að ofan.

Leshringur hjá Nátthaga
Zoom kenni: 894 7170 7028
Zoom lykilnúmer: 000000 (6 núll)
Zoom hlekkur: https://us02web.zoom.us/j/89471707028
Leshringur hjá Nátthaga
Allir eru velkomnir í hugleiðsluna og á leshringinn og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Djúpt Gassho.
0 Comments

Vordagskrá Zen á Íslandi - Nátthaga 2021

4/1/2021

0 Comments

 
Fimmtudaginn 7. janúar næstkomandi kl. 17:30 hefst voriðkun Zen á Íslandi - Nátthaga. Við byrjum á að sitja zazen með hjálp Zoom, en vonandi getum við sem fyrst farið að hittast aftur að Kletthálsi 1. Þar að auki hefst nú vordagskráin þar sem finna má vinnuiðkun, setudaga, námskeið, leshringi, fyrirlestra og Sesshin í Skálholti, sjá dagskrána í heild sinni hér á vefnum. 
Picture
Þegar maður lærir fyrst að sitja zazen þá getur maður ekki lært zazen til hlýtar, í heild sinni í einu höggi. Við byrjum því á að búta zazen niður í litla bita og fylgjum þeim í ákveðinni röð: að stjórna líkamanum (choshin), að stjórna andanum (chosoku) og svo að stjórna huganum (choshin). Í Eihei-koroku skrifaði Dogen: "Í zazen er mikilvægt að sitja í réttri líkamsstöðu. Næst skaltu stjórna andanum og svo róa þig niður." -Issho Fujita
​DAGLEG IÐKUN Á ZOOM
Mánudaga kl. 17:30 - setið í 40 mínútur
Þriðjudaga kl. 07:20 - setið í 40 mínútur
​Miðvikudaga kl. 07:20 - setið í 40 mínútur
​Fimmtudaga kl. 17:30 - setið í 40 mínútur
Föstudaga kl. 07:20 - setið í 40 mínútur
Laugardaga kl. 09:00 - setið í 40 mínútur​

​Zazen @ Nátthagi
Zoom kenni: 847 6507 5564
Zoom lykilnúmer: 000000 (6 núll)
Zoom hlekkur: https://us02web.zoom.us/j/84765075564
Zazen hjá Zen á Íslandi - Nátthaga
0 Comments

    Eldra

    June 2025
    April 2025
    March 2025
    February 2025
    January 2025
    December 2024
    November 2024
    September 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    December 2023
    November 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    May 2023
    April 2023
    March 2023
    February 2023
    January 2023
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    August 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013

    Höfundur

    Zen á Íslandi

    Efni

    All

    RSS Feed

Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539

Tölvupóstfang: [email protected]
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð