Byrjendanámskeið eru haldin í upphafi hverrar annar (í september-október og janúar-febrúar) þar sem farið er rækilega í öll grunnatriði Zen iðkunar. Þátttaka í byrjendanámskeiði innifelur ókeypis þátttöku í öllum dagskrárliðum Nátthaga á meðan á námskeiðinu stendur. Tímasetning og þátttökugjald fyrir námskeiðin eru auglýst hér á heimasíðunni áður en námskeiðin hefjast.
Þeir sem hafa áhuga á því að prófa að iðka í Nátthaga til skamms tíma geta greitt fyrir eitt skipti í einu eða fyrir þrjá mánuði í senn, og er þá innifalin öll almenn dagskrá, þeas. allir hugleiðslutímar og leshringir. Frekari upplýsingar má finna á skráningarsíðu félagsins.
Í hverjum mánuði á haustönn og vorönn (nema í desember og maí) fer fram opinn fyrirlestur um Zen. Aðgangur á fyrirlestra af þessu tagi er ókeypis. Þá hefst dagurinn kl. 08:00 með hugleiðslu og síðan er fyrirlestur kl. 09:15 - 10:15. Dagskrána má finna dagskrársíðu félagsins.
Öll starfsemi Nátthaga byggir á sjálfboðavinnu félagsmanna og fara öll félagsgjöld og styrkir í að viðhalda starfsemi félagsins. Öllum er velkomið að iðka í Zen á Íslandi - Nátthaga óháð trúar- og lífsskoðunum og er áhugasömum bent á að hafa samband við okkur með því senda póst á [email protected].