• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Lög Zen á Ísland - Nátthaga

Picture
Lög
 
Zen á Íslandi – Nátthaga.

1. gr.
Um félagið
Félagið heitir Zen á Íslandi - Nátthagi og starfar í dag í samræmi við gildandi lög nr. 108/1999 með síðari breytingum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.
2. gr.
Tilgangur félagsins
Félagið byggir á opinberun búddaeðlisins og er tilgangur þess að viðhalda iðkun Soto Zen Búddisma á Íslandi. Til þess starfrækir félagið aðstöðu til iðkunar fyrir alla félags­menn og býður upp á athafnir, eins og nafngiftir, giftingar og jarðarfarir.
3. gr.
Varnarþing og félagssvæði
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæði þess er allt Ísland.
4. gr.
Félagsmenn
Félagar eru taldir allir iðkendur sem hafa skráð sig rafrænt í félagið á heimasíðu fé­lagsins eða hafa skráð sig í trúfélagið hjá Þjóðskrá Íslands. Úrsögn úr félaginu er einnig rafræn á heimasíðu félagsins.  Félagar geta allir gerst sem vilja styðja markmið félagsins.
​

Skráning félagsmanna í trúfélagið hjá Þjóðskrá Íslands er nafnlaus og skulu félags­menn því sjálfir sýna fram á skráningu sína þegar þurfa þykir.
5. gr.
Ábóti félagsins
Ábóti er æðsti andlegi leiðtogi félagsins. Skal ábóti hafa fengið Darmayfirfærslu frá kenn­ara sínum í Soto Zen hefðinni, sem einnig hefur fengið Darmayfirfærslu frá sínum Zen kenn­ara. Hann ber ábyrgð á andlegum málefnum félagsins og kveður til starfa and­lega embættismenn félagsins, eins og hefð er fyrir í öðrum búddískum félögum, sem dæmi má nefna Ino, Doan og Tenzo. Ef til ágreinings kemur í and­legum málum innan félagsins hefur ábóti síðasta orðið.

Ábóti ber ábyrgð á og mótar kennslu og iðkun félagsmanna. Hann sér um og mótar form iðkunar í Zendo iðkunarrými félagsins. Hann leggur sig fram um að vera ávallt til staðar fyrir alla félagsmenn og þá sérstaklega þegar iðkun fer fram í húsakynnum félagsins eða félagið stendur fyrir öðrum viðburðum. Ábóti fylgist með efni viðburða, eins og til dæmis leshringja og ræða.

Ábóti ber ábyrgð á athöfnum félagsins, eins og nafngiftum, giftingum, jarðarförum, Að taka á móti lífsgildunum Jukai, Að yfirgefa heimili sitt Tokudo og Darmayfirfærslum.

Ábóti ber ábyrgð á samskiptum við höfuðstöðvar Soto Zen Búddisma í Japan, Soto Shu, sem og samskiptum við aðra Zen kennara um allan heim. Ábóti ræktar tengsl fé­lagsins við Soto Shu, eins og skylda er til frá hendi höfuðstöðva Soto Shu. Þar að auki heldur Ábóti tengslum við Sonoma Mountain Zen Center, Genjo-ji.
​

Ábóti ákveður sjálfur eftirmann sinn og upplýsir stjórn um ákvörðunina. Hafi ábóti ekki tilgreint eftirmann þegar hann lætur af störfum eða fyrir andlát þá skal nýr ábóti kosinn á aðalfundi félagsins, en þangað til fer forstöðumaður með vald og ábyrgð ábóta. Ábóti hefur neitunarvald hvað varðar starfrækslu húsnæðis og staðsetningu þar sem athafnir félagsins eru iðkaðar ásamt aðstöðu til iðkunar fyrir félagsmenn. Ábóti hefur jafn­framt neitunarvald gagnvart sölu húsnæðis í eigu félagsins eða stofnun til skulda á vegum félagsins.
6. gr.
Forstöðumaður félagsins
Forstöðumaður félagsins er æðsti embættismaður félagsins og er ábyrgur gagnvart sýslum­anni fyrir því að farið sé að ákvæðum laga. Forstöðumaður er forráðamaður fé­lagsins og for­maður stjórnar, og skráður sem slíkur hjá Fyrirtækjaskrá.

Forstöðumaður skal starfa samkvæmt lýsingu í þeim lögum sem snúa að félaginu. Þar segir meðal annars að forstöðumaður skuli færa embættisbækur félagsins og gefa út full­gild vottorð um efni þeirra. Hann skal árlega senda sýslumanni skýrslu um starfsemi fé­lagsins. Forstöðu­maður skal á þriggja ára fresti tilnefna til sýslumanns þá einstaklinga sem annast þau embættis­verk sem honum eru falin samkvæmt lögum, t.d. útfarir, gift­ingar, nafngjafir eða önnur hlið­stæð verk. Þegar forstöðumaður lætur af störfum skal þegar í stað tilkynna sýslumanni um starfslok og tilnefningu nýs forstöðumanns.
​

Forstöðumaður er kosinn til 5 ára í senn á aðalfundi félagsins. Ábóti er ekki gjald­gengur sem forstöðumaður. Ef forstöðumaður lætur af störfum áður en tímabilinu er lokið þá skal nýr forstöðumaður kosinn á næsta aðalfundi félagsins, en þangað til fer ábóti með vald og ábyrgð forstöðumanns.
7. gr.
Stjórn félagsins
Stjórn félagsins skipa forstöðumaður og fjórir stjórnarmenn. Stjórnarmenn eru kosnir til 2 ára í senn á aðalfundi félagsins. Ábóti og forstöðumaður eru ekki gjaldgengir sem stjórnarmenn.

Þar að auki er kosinn einn varamaður í stjórn á aðalfundi. Varamaður er kosinn á hverju ári í eitt ár í senn. Ef stjórnar­maður lætur af störfum eða fellur frá áður en kjörtímabili hans lýkur, þá tekur varamaður sæti viðkomandi fram að næsta aðalfundi félagsins. Ef kjörtímabili fráfarandi stjórnarmanns er ekki lokið þá, þá er nýr stjórnarmaður kosinn til að ljúka kjörtímabilinu.

Stjórn fundar einu sinni í mánuði og er fundarhæft ef meirihluti stjórnarmanna mætir. Komi til atkvæðagreiðslu á stjórnarfundum ræður einfaldur meirihluti stjórnarmanna. Ef slétt tala stjórnarmanna mætir á stjórnarfund þá fer forstöðumaður með oddaatkvæði á þeim stjórnarfundi. Ábóta er boðið til áheyrnar og ráðgjafar á alla stjórnarfundi félagsins.

Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund sem hér segir:
​

  1. Forstöðumaður er formaður stjórnar og fundarstjóri stjórnarfunda og aðalfundar.
    Ef forstöðumaður er fjarverandi þá hefst fundur á kosningu fundarstjóra.
  2. Forstöðumaður sér um að boða varamann í forföllum stjórnarmanns.
  3. Ritari er fundarritari stjórnarfunda og aðalfundar.
    Ef ritari er fjarverandi þá hefst fundur á kosningu fundarritara.
  4. Gjaldkeri heldur utan um um fjárhagsbókhald félagsins.
  5. Tveir meðstjórnendur taka að sér tilfallandi verkefni.  

Stjórn ber ábyrgð á að halda félagaskrá, eins og lýst er í 4.gr., og skal hún vera rafræn. 

Stjórn afgreiðir árlega tillögur að starfsáætlun stjórnar.

Stjórn setur sér starfsreglur á fyrsta fundi eftir aðalfund félagsins.
8. gr.
Fjármál
Starfsár og reikningsár félagsins er almanaksárið.

Stjórn ber ábyrgð á öllum fjármunum og eignum félagsins og skulu öll fjárútlát ávallt helgast af tilgangi félagsins, sbr. 2. grein.

Gjaldkeri stjórnar skal halda fjárhagsbókhald og skal hann kynna stöðu þess á hverjum stjórnarfundi. Ábóti, forstöðumaður og aðrir félagsmenn skulu sækja fjármuni til fram­kvæmda til stjórnar með því að leggja beiðnir þess efnis fyrir stjórnarfund.

Skoðunarmaður yfirfer og samþykkir fjárhagsbókhald félagsins ár hvert fyrir aðalfund. Skoðunarmaður er kosinn í eitt ár í senn á aðalfundi félagsins.

Stjórn ákvarðar upphæð félagsgjalda og skal hún stilla félagsgjöld eftir þörfum enda ekki markmiðið að skila afgangi í lok árs.

Stjórn skal halda úti verðskrá þar sem tilgreindir eru allir viðburðir og athafnir sem greiða skal fyrir til félagsins. Öll verðlagning viðburða félagsins, eins og t.d. fyrir þátttöku í hug­leiðsludögum fé­lagsins Sesshin, og allra athafna félagsins, eins og lýst er í 2.gr., eru á forræði stjórnar en innheimta allra greiðslna er á ábyrgð gjaldkera.

Þar að auki ber stjórn ábyrgð á og ákveður einu sinni á ári styrki til ábóta og forstöðu­manns. Þegar styrkirnir eru ræddir og ákveðnir á stjórnarfundi þá skulu ábóti og forstöðu­maður víkja af fundi og aðrir stjórnarmenn ákveða styrkupphæðir.
9. gr.
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir marslok ár hvert. Boða skal til aðalfundar raf­rænt með minnst 7 daga fyrirvara. Í fundarboði skal geta eftirfarandi dagskrár:

  • (Forstöðumaður býður gesti velkomna)
  • (Kosning fundarritara)
  • (Kosning fundarstjóra)

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Skýrsla gjaldkera og ársreikningur
  3. Kosning ábóta til framtíðar
  4. Kosning forstöðumanns til 5 ára
  5. Kosning stjórnarmanna til 2 ára
  6. Kosning varamanns til 1 árs
  7. Kosning skoðunarmanns til 1 árs
  8. Lagabreytingar
  9. Önnur mál  

Öll fundargögn aðalfundar skulu gerð aðgengileg félagsmönnum eigi síðar en 3 dögum fyrir aðalfund.
 
Atkvæðagreiðsla skal fara fram um liði 3, 4, 5, 6, 7 og 8.

Atkvæðagreiðsla um mál sem lögð eru fram undir öðrum málum fer eftir atvikum hverju sinni.
10. gr.
Aukaaðalfundur
Meirihluti stjórnar eða ábóti getur boðað til aukaaðalfundar ef talið er að verkefni sem fjalla á um á aðalfundi megi ekki bíða aðalfundar. Boða skal fundinn innan viku eftir að slík ákvörðun hefur verið tekin. Skal þá halda aukaaðalfund tveimur vikum eftir að boðun fer fram.
11. gr.
Lagabreytingar
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi. Til að lagabreytingartillaga teljist sam­þykkt þarf hún að hljóta 2/3 greiddra atkvæða. Breytt lög taka gildi strax að aðalfundi loknum.
12. gr.
Slit félagsins
Félaginu skal slitið og það lagt niður ef ábóti og meira en 2/3 mættra félaga krefjast þess á aðalfundi félagsins. Skal aðalfundur þá kjósa nýjan forstöðumann og honum falinn frágangur félagslegra og fjárhagslegra skuldbindinga og eigna. Við slit félagsins skulu allar eignir þess að frádregnum skuldbindingum renna til góðagerðarmáls eða annars fé­lags með sambærilegan tilgang, en skal það valið af meirihluta mættra félaga á þeim aðal­fundi sem ákveður að leggja félagið niður.
13. gr.
Staðfesting aðalfundar
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi félagsins í Reykjavík þann 29. Nóvember 2025.

Viðauki
Orðskýringar
  1. Zen Búddismi – er hefð innan búddisma sem á upptök sín í Indlandi, flyst til Kína, og kallast þar Chan, og flyst síðar yfir til Japans, þar sem hefðin fær nafnið Zen.
  2. Soto Zen Búddismi – Zen Búddismi skiptist í þrjár útfærslur en tvær þeirra eru lang algengastar, annars vegar svokölluð Rinsai útfærsla, sem leggur á­herslu á íhugun svokallaðra Koan-a sem eru stuttar þver­sagnakenndar sögur eða gátur ætlaðar til að vekja hugann til raunveruleika lífsins. Hins vegar er svokölluð Soto útfærsla, sem leggur aðaláherslu á hugleiðsluaðferðina Zazen sem er sitjandi hugleiðsla án mark­miðs, og er hún einnig ætluð til þess að vekja hugann til raunveruleika lífsins. Zen á Íslandi viðheldur iðkun Soto Zen Búdd­isma á Íslandi.
  3. Zendo – er salur þar sem iðkun Zazen fer fram. Salurinn er settur upp á einfaldan og fallegan máta, með púðum til að sitja Zazen hugleiðslu á, bjöllum sem notaðar eru til að gefa iðkendum merki um að Zazen sé að hefjast og ljúka og til að halda ryþma þegar kyrjun fer fram. Þar að auki er hefð fyrir því að altari sé sett upp í Zendo-inu, en iðkendur beygja í átt að altarinu.
  4. Sesshin - þýðir "að snerta hug-hjartað" og eru hugleiðsludagar þar sem iðkendur vakna snemma og einbeita sér að Zen iðkun í þögn í öllum athöfnum dagsins. Zen á Íslandi heldur slíka daga að jafnaði tvisvar á ári, svokallað Borgarsesshin að hausti í húsnæði félagsins í Reykjavík og svo Vorsesshin að vori, sem haldið er úti á landi, fjarri amstri hversdagsins. 
  5. Ino – er hlutverk innan Zen. Ino ber ábyrgð á og stjórnar öllu í Zendo-inu.
  6. Doan – er hlutverk innan Zen. Doan ber ábyrgð á bjöllum og reykelsum í Zendo.
  7. Tenzo – er hlutverk innan Zen. Tenzo ber ábyrgð á öllu matarkyns.
  8. Jukai – er athöfn þar sem iðkandi staðfestir vilja sinn til að ganga veg Búdda.
  9. Tokudo – er athöfn þar sem kennari staðfestir iðkanda sem Zen prest.
  10. Darmayfirfærsla – er athöfn þar sem kennari staðfestir iðkanda sem Zen kenn­ara. Þessi athöfn er mjög sjaldgæf og tekur nokkra daga í framkvæmd.
  11. Soto Shu – eru höfuðstöðvar Soto Zen í heiminum. Höfuðstöðvarnar eru í Japan en þar að auki eru útibú í Evrópu og Ameríku.
  12. Sonoma Mountain Zen Center, Genjo-ji – er iðkunarstaður á Sonoma fjalli í norður Kaliforníu. Stofnandi Genjo-ji Jakusho Kwong-Roshi var fyrsti kennari Zen á Íslandi. Mikil tengsl hafa myndast milli Zen á Íslandi og Genjo-ji sem mikilvægt er að rækta.
 
Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539

Tölvupóstfang: [email protected]
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð