Næstkomandi laugardag, 1. apríl höldum við upp á afmæli Búdda á Kletthálsinum. Hugleiðsla hefst kl. 08.00 og sitjum við saman í þögninni í 35 mínútur. Síðan höldum við fallega athöfn í Zendóinu þar sem við förum upp að altarinu og laugum Búdda vatni. Með athöfninni minnumst við fæðingu Búdda. Athöfnin tekur um 30 mínútur. Við hvetjum ykkur til að bjóða fjölskyldu og/eða vinum að skyggnast inn í okkar iðkun og upplifa styrkinn og einlægnina sem einkennir okkar athafnir. Það væri líka sérstaklega gaman að sjá eldri iðkendur sem ekki hafa komið lengi. Eftir athöfnina höldum við afmælisveislu þar sem hver og einn leggur til eitthvað gómsætt svo úr verður dýrindis veisluborð að vanda. Þrjár djúpar beygjur. Gassho.
0 Comments
Næstkomandi laugardag 18. mars 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Eins og að fálma eftir koddanum um miðja nótt“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. Um miðja nótt skynjarðu að koddinn hefur færst til undan höfðinu. Í svefnrofunum réttir þú út höndina og fálmar eftir honum. Engin fyrirstaða ekkert hik, eins og móðir sem hjúkrar barni sínu. Nóttin er móðir sem vakir og hlustar eftir andardrætti barns síns. Nóttin hefur þúsund hendur og þúsund augu og strýkur þér af alúð um vangann og hvíslar í eyra þér, eins og hægur andvari sem gælir við vindhörpu og sendir blíða tóna út í náttmyrkrið: „Það er allt í lagi“. Þú opnar hönd hugans og gefur þig á vald nóttinni. Á slíkri stundu veistu að það er enginn sem heyrir og ekkert að heyra, enginn sem sér og ekkert að sjá. Þú finnur koddann, brýtur mjúklega upp á hornið og kemur honum þægilega fyrir undir höfðinu. Eins og móðir sem breiðir yfir barn sitt. -Zenki Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll. Næsta laugardag 4. mars mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá textann „Hver er þinn kennari?“ eftir Kobun Chino-roshi, í þýðingu Óskars Daian Tenshin Ingólfssonar. Í textanum segir: „Viska kemur ekki frá ákveðnum stað. Hún er alltaf til staðar, í formi vakningar. Hún er ávallt bæði hér og þar. Allsstaðar! Það sem þú getur gert er að lyfta hulunni eða opinberað viskuna. “ Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest. |
Eldra
September 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |