• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Fréttir og tilkynningar

Aðalfundur Zen á Íslandi - Nátthaga - 12. maí

30/4/2018

0 Comments

 
Aðalfundur trúfélagsins Zen á Íslandi - Nátthaga verður haldinn, eins og áður hefur verið kynnt, laugardaginn 12. maí næstkomandi í húsakynnum félagsins að Grensásvegi 8, 4.hæð.

Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi:
 
1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrsla gjaldkera
3. Félagsgjöld iðkenda
4. Kosning forstöðumanns
5. Önnur mál

Laugardagurinn hefst stundvíslega með hugleiðslu kl. 08:00, á eftir ætlar Tenzo að hafa morgunkaffi og síðan hefst aðalfundurinn um kl. 10:00.
Picture
0 Comments

Oryoki morgunverður á laugardag

26/4/2018

0 Comments

 
Í miðjum næsta mánuði höldum við Sesshin Zen á Íslandi í Skálholti. Að þessu sinni er um fræðslusesshin að ræða þar sem við tökum sérstaklega fyrir máltíðarsútrurnar, og þannig Oryoki iðkunina sjálfa. Oryoki málsverðum fylgja miklar japanskar hefðir og með iðkun þeirra náum við að snerta þennan hluta daglegs lífs okkar dýpra en við gerum venjulega.

Næsta laugardag, 28. apríl, á Grensásveginum, ætlum við að gæða okkur á morgunverði saman á þennan japanska hátt. Þetta er kærkomið tækifæri til að læra og rifja upp þessa miklu og dásamlegu iðkun sem Oryoki er. Í Oryoki iðkum við zen og neytum matar okkar, finnum og leyfum.
Picture
Þegar tenzo eldar þá er maturinn Búdda og eldamennskan er zazen.
- Shohaku Okumura-Roshi í þýðingu Mikhael Zentetsu
Oryoki með Zen á Íslandi fer nokkurnveginn fram eins og sýnt er á myndbandinu hér að neðan. Samt ekki alveg og viljum við því bjóða ykkur öllum að koma og iðka Oryoki með okkur á laugardaginn kemur.
Morguninn hefst með zazen kl. 08:00 og allir eru velkomnir.

​ENDILEGA TILKYNNIÐ MÆTINGU FYRIRFRAM Á ZEN@ZEN.IS
0 Comments

Sesshin í Skálholti / Allt sem á vegi þínum verður

18/4/2018

0 Comments

 
Picture
SKRÁNING ER HAFIN
Árleg Sesshin hugleiðsluhelgi Zen á Íslandi - Nátthaga fer fram í Skálholti miðvikudaginn 16. maí - sunnudagsins 20. maí 2018. Skráning er hafin á zen@zen.is eða á skráningablaði sem liggur frammi á Grensásvegi. Einnig er hægt að smella á hnappinn hér að neðan:
Almennt þáttökugjald er 42.000 kr. en 37.800 kr. fyrir reglulega iðkendur sem greiða árgjald.
Smelltu hér til að skrá þig á Sesshin 2018
Picture
HVAÐ ER SESSHIN?
Sesshin er nokkurra daga samfelld hópiðkun. Við hjá Zen á Íslandi höldum Sesshin einu sinni á ári, að vori til, og förum þá upp í Skálholt þar sem við gistum og iðkum í fjóra daga.

Sesshin merkir bókstaflega "að snerta hug og hjarta", sem getur vísað til þess að í hugleiðslu á Sesshin nálgumst við og verðum nánari okkar upprunalega hug. Öll iðkun á Sesshin fer venjulega fram í þögn og með vakandi athygli, þannig truflum við ekki aðra iðkendur og einbeitum okkur að hinni einu stund.
​
Á Sesshin hefst dagurinn kl. 04:45 og er setin zazen hugleiðsla nokkrum sinnum yfir daginn, í 30 mínútur í senn. Á dagskráinni eru einnig gönguhugleiðslur, kyrjanir, vinnuiðkanir, einkaviðtöl við kennara, ræður og annað fræðsluefni ásamt hvíldar- og matartímum. En deginum lýkur kl. 21:00 á kvöldin. Dagskráin hljómar kannski erfiðari en hún er og eiga iðkendur sem hafa komið í sitjandi hugleiðslu hjá Zen á Íslandi venjulega ekki í vandræðum með Sesshin.
Picture
FRÆÐSLUSESSHIN 2018
Sesshin í ár verður með sambærilegu sniði og í fyrra, svokallað fræðslusesshin. En þá er um meiri fræðslu og samskipti milli nemenda að ræða, en á hefðbundnu Sesshin. Fræðslusesshin Zen á Íslandi er í anda "Genzo-e" námskeiðanna sem Soto Zen meistarar á borð við Nishiari Bokusan, Oka Sotan og Ian Kishizawa gerðu vinsæl snemma á 20. öldinni í Japan.
​
Í ár munum við flétta fræðslu og rannsóknir á texta Shohaku Okumura um matmálssútrurnar saman við hina sitjandi hugleiðslu og aðra formlega iðkun. Þegar við neytum matar á Sesshin þá er það gert með hinni japönsku Oryoki aðferð. En það er hluti af þessari aðferð að fara með matmálssútrurnar, sem við ætlum að fræðast um í þetta sinn. Við köllum þetta Sesshin "Allt sem á vegi þínum verður".
Picture
ORYOKI MÁLTÍÐ ER IÐKUN MILLIVEGARINS
Þýski nítjándu aldar heimspekingurinn Ludwig Feuerbach sagði eitt sinn, "Við erum það sem við borðum." Reyndar erum við ekki bara það sem við borðum, heldur líka það sem við sjáum, heyrum, hugsum og gerum. Jijuyu zanmai - það samadhi sem tekur á móti eigin sjálfi og beitir eigin sjálfi - er þegar við meðtökum allt sem á veginum verður eins og það er í sjálfu sér, og tökum á móti öllum hlutum og verum sem okkar eigið sjálf. Mikilvægasta kennsla Dogens Zenji er að meðtaka þennan líkama og hug og öllu sem við mætum sem lífinu okkar. Þá verður sjálfið og allur dharmaheimurinn einn óaðgreinanlegur veruleiki. Við skulum meðtaka og nota allt sem á vegi okkar verður sem samadhi. Lífið allt er samadhi. Þetta þýðir að hver einasta athöfn hins daglega lífs verður birtingarmynd zazen iðkunar okkar.
 Smelltu hér til að skrá þig á Sesshin 2018
ERTU MEÐ SPURNINGU?
Ef þú ert með einhverja spurningu þá endilega sendu póst á zen@zen.is.
0 Comments

Að vakna til ófullkomleikans - Versið um iðrun

17/4/2018

0 Comments

 
Á laugardaginn kemur þann 17. apríl 2018 verður leshringur í Zen á Íslandi - Nátthaga. Við munum þá lesa saman kafla úr bókinni Living by Vow eftir Shohaku Okumura, í þýðingu Mikhael Zentetsu. En áður hefur Mikhael þýtt og við lesið alla aðra kafla úr þessari bók að undanskildum kaflanum um máltíðarsútruna.

Kaflinn sem við lesum nú heitir "Að vakna til ófullkomleikans - versið um iðrun". Þessi kafli fjallar um vers friðþægingarinnar, sem við kyrjum meðal annars í iðrunarathöfninni á nýju ári. En einnig er farið með versið þegar við tökum við lífsgildunum sextán í Jukai athöfn, en þá byrjum við á að iðrast gjörða okkar með því að fara með þetta vers. Slík iðrun er einskonar núllstilling, því karmað fylgir okkur alltaf áfram.

Hjá Zen á Íslandi – Nátthaga hefur þetta vers áður verið snúið yfir á íslensku á neðangreindan hátt, en á laugardaginn munum við ræða hvernig þýðingin er upp úr Living by Vow:
Allt það karma sem frá fornu fari
af endalausri græðgi, reiði og óvisku ég hef skapað
getið af líkama, munni og hugsun
nú bæti ég fyrir það allt!
Picture
Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
0 Comments

Afmæli Búdda 2018

5/4/2018

0 Comments

 
Næstkomandi laugardag, þann 7. apríl, höldum við upp á afmæli Búdda á Grensásveginum með fjölskyldu og vinum. Við höldum fallega athöfn í Zendóinu okkar kl. 10:30 þar sem við förum upp að altarinu og laugum Búdda vatni.  Athöfnin tekur um 30 mínútur.

Með athöfninni minnumst við fæðingu Búdda og bjóðum börnum okkar, fjölskyldu og vinum að taka þátt. Það er gott að geta leyft fjölskyldu og vinum að skyggnast inn í okkar iðkun og upplifa styrkinn og einlægnina sem einkennir okkar athafnir. Það væri líka sérstaklega gaman að sjá eldri iðkendur sem ekki hafa komið lengi.

​Eftir athöfnina höldum við afmælisveislu að hætti Tenzo.

--- Athugið að það er engin seta um morguninn. ---
​
Picture
Óvenjuleg fæðing
[Kafli úr bókinni Sagan af Siddarta prins - Búdda, boðbera friðar og kærleika eftir Jonathan Landaw í þýðingu Sigurðar Skúlasonar. Bókin er myndskreytt af Janet Brooke, en myndin sem fylgir þessum pósti er ein af hennar frábæru myndum.]

Endur fyrir löngu gerðist í litlu konungsríki á Norður-Indlandi atburður sem átti eftir að hafa áhrif í öllum heiminum. Maja drottning, eiginkona hins góða konungs Súddódana, lá sofandi og dreymdi yndislegan draum. Henni fannst að hún sæi skínandi bjart ljós á himninum sem lýsti niður til hennar og í miðju ljóshafinu birtist stórfenglegur fíll. Hann var mjallahvítur með sex stórar skögulgennur. Þessi fíll kom fljúgandi úr ljósinu, færðist nær og nær drottningunni og að lokum rann hann saman við líkama hennar. Maja drottning vaknaði og fann til meiri hamingju en hún hafði nokkru sinni upplifað áður.

Hún flýtti sér til konungsins og saman fóru þau á fund vitringanna við hirðina og spurðu þá hvað þessi furðulegi og dásamlegi draumur gæti táknað. Vitringarnir svöruðu: "Ó, yðar hátignir, þetta er óviðjafnanlegur draumur! Hann táknar það að drottningin muni fæða son og að prinsinn sá muni dag einn verða mikill maður. Þetta einstaka barn sem drottningin mun fæða verður ekki aðeins ykkur til gæfu, heldur gjörvöllum heiminum." Þegar konungur og drottning heyrðu þetta urðu þau yfir sig glöð. Einkum varð konungurinn glaður, því hann þráði að eignast son sem myndi erfa konungsríkið eftir hans dag. Og nú virtist ósk hans ætla að rætast.
Á þeim tíma ríkti sá siður, að þegar kona skyldi fæða barn hélt hún til föðurhúsa sinna. Og þegar stundin nálgaðist yfirgaf Maja drottning höllina ásamt mörgum vina sinna og þjónustufólki og lagði upp í ferð til æskustöðvanna.
Þau höfðu ekki ferðast lengi, þegar drottningin vildi nema staðar og hvíla sig. Hún vissi að barnið var um það bil að fæðast. Þau voru stödd í hinum fagra Lúmbíní-garði og þar leitaði drottningin að hentugum stað, þar sem hún gæti fætt barnið. Sagan segir að meira að segja dýr og jurtir, sem virtust einhvern veginn vita hvílíkt barn var að koma í heiminn, hafi viljað hjálpa til. Þarna var t.d. stórt tré sem beygði eina grein sína niður svo drottningin gæti náð taki á henni með hægri hendi. Þegar hún hafði þannig fengið stuðning ól hún son. Þjónustufólkið tók drenginn í fang sér og var furðu slegið yfir fegurð hans og friðsæld.

Á þessu sama andartaki fór tilfinning friðar og hamingju um gjörvallt landið. Fólk gleymdi vandamálum sínum, lagði niður deilur og fann til mikils kærleika og vináttu hvert til annars. Sumir sáu skyndilega regnboga á himninum og öðrum birtust fleiri óvenjulegar og fagrar sýnir.
Picture
Vitrir menn um allt konungsríkið tóku eftir þessum teiknum friðar og gleði og sögðu hver við annan í ákefð: "Einhver mikil gæfa hefur gerst. Sjáið öll þessi dásamlegu teikn! Þetta hlýtur að vera alveg einstakur dagur!"
Maja drottning, sem hafði enga hugmynd um, að sú gleði sem hún fann til vegna fæðingar sonar síns, hafði strax breiðst út um allt konungsríkið, tók barnið í fang sér og sneri aftur til konungshallarinnar. Þetta gerðist í byrjun fjórða mánaðar í Indlandi (maí-júní) og tunglið var að verða fullt.
​Það er þessi fæðing Búdda, sem búddistar halda upp á í byrjun apríl, og við ætlum að hittast og halda uppá núna á laugardaginn kemur.

Hlakka til að sjá ykkur öll!

Í gassho,

​-Alfred Chozetsu
0 Comments

    Eldra

    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013

    Höfundur

    Zen á Íslandi

    Efni

    All

    RSS Feed

Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð