Laugardaginn 2. september frá kl. 10:15 - 11:15 fer fram leshringur í Nátthaga. Þessi fyrsti leshringur haustsins ber yfirskriftina "Endanlegt skjól: Að leita athvarfs í Búdda, Dharma og Sangha" og er úr bókinni Living by Vow eftir Okumura Roshi. Íslenska þýðingin er gerð af Mikhael Zentetsu og mun hann lesa fyrir okkur á laugardaginn kemur. Að leita athvarfs í Fjársjóðunum þremur, Búdda, Dharma og Sangha með því að fara með stutt vers þess efnis er eitthvað sem næstum allir búddistar iðka. Í þessum kafla fjallar Okumura Roshi um þetta vers eins og það kemur fyrir í Soto Zen hefðinni og gerir grein fyrir merkingu þess í iðkun og daglegu lífi. Allir eru velkomnir á leshringinn. Að venju hefst dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
0 Comments
|
Eldra
September 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |