• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Fréttir og tilkynningar

Zoom iðkun, vinnuiðkun og Sesshin

5/5/2020

0 Comments

 
IÐKUN Í BEINU ZOOM STREYMI
Við höldum uppi anda Zen iðkunar með því að sitja saman í beinu Zoom streymi út þessa viku. Með von um að sjá ykkur sem flest á Zoom, enda er sannleikurinn sá að Zazen með þessum hætti er bæði gott og innilegt. En dagleg iðkun út þessa viku er sem hér segir:

Miðvikudaginn kl. 07:20 - setið með Zoom í 40 mínútur
Fimmtudaginn kl. 17:30 - setið með Zoom í 40 mínútur
Föstudaginn kl. 07:20 - setið með Zoom í 40 mínútur
Picture
Okkar sameiginlega iðkun fer núna fram á þennan máta og mikilvægt að halda uppi anda Zen iðkunar til blessunar og heilla fyrir okkur sjálf, fjölskyldu okkar og allt samfélagið. Það er alltaf mikilvægt að sýna samhug og ekki síst á víðsárverðum tímum sem þessum. -Ástvaldur Zenki-sensei
Endilega takið þátt með því að smella á hnappinn hér að neðan, notist við neðangreint Zoom kenni eða hlekk:

​Zazen @ Zen á Íslandi
Zoom kenni: 782 3037 7712
Zoom hlekkur: https://us04web.zoom.us/j/78230377712
ZAZEN  HUGLEIÐSLA


SAMU VINNUIÐKUN Á KLETTHÁLSI

Á meðan við höfum setið heima síðustu vikur þá hafa nokkrir iðkendur ásamt iðnaðarmönnum unnið að því hörðum höndum að koma húsnæði okkar að Kletthálsi 1 í sem best horf svo að við megum njóta þegar við komum til baka til Zen iðkunar þar. Bæði hafa verið settir upp veggir og málað. Nú þurfum við að taka til og þrífa áður en við mætum þar til hefðbundinnar iðkunar næsta mánudag. Þess vegna verður Samu vinnuiðkun næsta laugardag að Kletthálsi 1. Endilega látið sjá ykkur.

*** Samu vinnuiðkun næsta laugardag frá kl. 9:00 - 11:00 að Kletthálsi 1.

​
SESSHIN Í SKÁLHOLTI 27. - 31. MAÍ

Að lokum viljum við benda ykkur á að Vorsesshin Zen á Íslandi verður haldið í Skálholtsbúðum eins og síðustu ár dagana 27. - 30. maí 2020 undir yfirskriftinni "Ekkert upphaf - enginn endir." Sesshin er nokkurra daga samfelld hópiðkun og þýðir "að snerta hughjartað" sem vísar til þess að á Sesshin nálgumst við og verðum nánari okkar upprunalega hug. Vegna aðstæðna í samfélaginu vill Zen á Íslandi leggja sitt af mörkum og hefur verðið því verið lækkað frá síðasta ári. Almennt þáttökugjald er 32.000 kr. en 29.000 kr. fyrir iðkendur sem greiða árgjald.
Endilega skráið ykkur með tölvupósti á [email protected] eða með því að smella á hnappinn hér að neðan:
SKRÁNING  Á  SESSHIN  2020

Ég vil að lokum hvetja okkur öll til þess að taka sem mest þátt í dagskránni okkar og lýsa þannig ljósi vakandi athygli í skúmaskot hugans.

Í djúpri beygju,

-Chozetsu
0 Comments



Leave a Reply.

    Eldra

    April 2025
    March 2025
    February 2025
    January 2025
    December 2024
    November 2024
    September 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    December 2023
    November 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    May 2023
    April 2023
    March 2023
    February 2023
    January 2023
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    August 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013

    Höfundur

    Zen á Íslandi

    Efni

    All

    RSS Feed

Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539

Tölvupóstfang: [email protected]
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð