Gleðilegt ár! Nú er vetrarfíi að ljúka og viðamikil vordagskrá Zen á Íslandi - Nátthaga hefst á þriðjudaginn kemur 9. janúar og er fyrsta seta kl. 07:20 á Grensásvegi 8, 4. hæð. Nátthagi býður félagsmönnum sínum og öllum öðrum að stunda zazen alla daga vikunnar nema sunnudaga. Iðkunartíma má finna á vefnum okkar undir valmyndinni IÐKUN > Dagleg iðkun eða með því að smella á hnappinn: Á dagskrá vetrar og vors 2018 eru meðal annars einir sex leshringir. Fyrir leshring er valinn kafli úr bók um Zen þýddur á íslensku. Á leshringnum sjálfum er þýðingin lesin og spinnast þá oft mjög áhugaverðar umræðum í kringum efni hennar. Vísa má til margs skemmtilegs spjalls frá síðasta hausti um innihald þýddu kaflanna úr bókinni "Hvert augnablik er alheimurinn" eftir Dainin Katagiri. Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í leshringjum núna í vetur. Zen ræður eru líka stór hluti af dagskrá okkar en þær halda kennarar okkar, Ástvaldur Zenki og Helga Kimyo, svo til í hverjum mánuði. Efni ræðanna hefur verið mjög fjölbreytt og skemmtilegt og má til dæmis rifja upp ræðurnar "Það er ekki eftir neinu að bíða" og "Hefur hundur Búddaeðli eða ekki?" frá síðasta hausti. Það verða fjórar ræður núna í vetur og hvetjum við alla til að láta sjá sig. Námskeiðið Andinn sópar hugann hefur verið haldið bæði vor og haust síðustu árin og er engin breyting á því í ár. Námskeiðið verður á fimmtudögum frá 8. febrúar til 1. mars frá kl. 17:30-19:00. Það er bæði ætlað byrjendum og iðkendum sem eru lengra komnir. Okkur langar til að hvetja ykkur öll til að koma á námskeiðið og upplifa Zen hugleiðslu. Líka þau sem hafa stundað hugleiðslu einhvern tíma; það er alltaf gott að fríska upp á formið. Nánari upplýsingar um námskeiðið má sjá á vefnum okkar undir valmyndinni NÁMSKEIÐ > Andinn sópar hugann eða með því að smella á hnappinn: Í maí verða svo Sesshin hugleiðsludagar í Skálholti. En á Sesshin koma Zen iðkendur saman og iðka í þögn yfir nokkurra daga skeið. Dagskráin er krefjandi, hefst snemma og inniheldur iðkun, viðburði, fræðslu og fleira. Eins og almenn Zen iðkun, þá hafa hugleiðsludagar margskonar góð áhrif á þátttakendur og langar okkur því að hvetja sem flesta til að taka þátt. Til viðbótar við þessa viðburði verður til dæmis nýársathöfn laugardaginn 20. janúar, samu, samverustundir og fleira. Allir dagskrárliðir verða kynntir nánar þegar nær dregur. En dagskrána í heild sinni má sjá á vefnum okkar undir valmyndinni Á DÖFINNI > Dagskrá Nátthaga eða með því að smella á hnappinn: Með von um að sjá ykkur sem flest sem oftast.
"Til vakningar, blessunar og verndar fyrir allar verur"
0 Comments
Leave a Reply. |
Eldra
February 2025
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |