Kæru félagar, Að vel yfirlögðu ráði hefur stjórn Zen á Íslandi ákveðið að breyta tímabundið okkar sameiginlegu iðkun. Í stað þess að sitja saman zazen á Kletthálsi 1 situr hver heima hjá sér. Þannig sýnum við í verki samfélagslega ábyrgð og um leið stuðning hvert við annað á flóknum og erfiðum tímum. Við munum að sjálfsögðu endurskoða þessa tilhögun í ljósi upplýsinga frá framvarðasveit sóttvarna, sem breytast dag frá degi. Ég legg til að við höldum daglegri iðkun okkar áfram en sitjum í 40 mínútur í hvert sinn. Heimadagskrá: Þriðjudagar, miðvikudagar og föstudagar kl. 7:20 (40 mínútur). Mánudagar og fimmtudagar kl. 17:30 (40 mínútur). Laugardagar kl. 9:00 (40 mínútur). Laugardaginn 21. mars kl. 10:00 verð ég með Dharmaræðu á Facebook live. Ræðan hefur fengið nafnið: Öldur aldanna. VIð munum láta vita af nánari útfærslu á næstu dögum. Ég vil benda á að það er alltaf hægt að hafa samband við mig. Best er að senda mér skilaboð á Messenger og ef óskað er eftir því getum við tímasett símtal í kjölfarið. Þó að hornsteinn iðkunar okkar sé að hittast og iðka saman sem Sanga þá er iðkun okkar án landamæra. Heimurinn og þú eruð eitt, það sem þú gerir fyrir sjálfan þig gerirðu fyrir heiminn líka. Við förum varlega og gleymum ekki að njóta lífsins og munum að vakandi athygli er vafalaust eitt sterkasta vopnið þegar kemur að því að verja ónæmiskerfið okkar gegn vírusum. Í anda Zen, Ástvaldur Zenki
0 Comments
Leave a Reply. |
Eldra
September 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |