• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Fréttir og tilkynningar

Hvert augnablik er alheimurinn og að vera tíminn

11/10/2017

0 Comments

 
Picture
Laugardaginn 14. október næstkomandi frá kl. 10:15 - 11:15 fer fram leshringur í Nátthaga. Í þessum leshring munum við lesa kafla úr bókinni Hvert augnablik er alheimurinn og að vera tíminn, eftir Dainin Katagiri, í íslenskri þýðingu Brynjars Shoshin.

Katagiri-roshi var japanskur Zen kennari og mjög mikilvægur í kynningu á Zen Búddisma í Ameríku. Hann kom fyrst vestur um haf árið 1965 til að aðstoðað Shunryu Suzuki í San Francisco Zen Center, sem hann svo gerði til 1971. Þá flutti hann um set og gerðist fyrsti ábóti Minnesota Zen Meditation Center og þjónaði þar til dauðadags árið 1990.

Katagiri-roshi lét eftir sig frábærar bækur eins og Returning To Silence, You Have to Say Something og Each Moment Is the Universe, sem Brynjar hefur nú þýtt kafla úr og við ætlum að lesa næsta laugardag.

Í þessari bók byggir Katagiri-roshi kennslu sína á að Vera Tíminn, texta eftir frægasta Zen meistara allra tíma, Eihei Dogen. Þar er sýnt að tíminn er í raun skapandi flæði sem stöðugt endurgerir alheiminn, og allt í honum - og að skilja þetta er í raun uppgötvun á leiðinni til frelsunar frá ófullnægju daglegs lífs.

Það er auðvelt að umgangast tímann sem vöru – við tölum jafnvel um að 'spara' hann eða 'eyða' honum. Oft lítum við á hann sem óvin, þegar okkur finnst hann líða hjá áður en við erum tilbúin undir að tíminn sé búinn. Sjónarhorn Zen á tímann er afar frábrugðið þessu: tími er ekki eitthvað aðskilið frá lífi okkar; heldur, líf okkar er tími. Skildu þetta, segir Dainin Katagiri, og þú getur lifað frjáls og til fulls nákvæmlega þar sem þú ert í hverju augnabliki.

Í bókinni segir Katagiri líka: Þegar þú skilur hvernig ýmis atriði mannlegs lífs þróast í augnabliki getur þú lifað frjáls á sviði tímans. Þú getur mætt augnablikinu og vitað hvað gera skuli. Þá getur þú skapað líf þitt með meðvitaðri breytni og líf þitt raunverulega virkað.

Eins og alltaf eru allir velkomnir á leshringinn, en að venju hefst dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.

0 Comments



Leave a Reply.

    Eldra

    March 2023
    February 2023
    January 2023
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    August 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013

    Höfundur

    Zen á Íslandi

    Efni

    All

    RSS Feed

Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Verslun
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
    • Zazen Instruction
  • Lykilorð