Á laugardaginn næstkomandi kl.10:15 verður fyrsti leshringur vetrarins. Nú er komið að því að skoða eina helstu ritningu Búddadómsins, sjálfa Hjartasútruna. Umfjöllunin sem við munum skoða er fengin úr "Living by Vow," bók eftir Zen meistarann, fræðimanninn og þýðandann Shohaku Okumura, sem skýrir alla helstu texta sem við kyrjum í Soto Zen hefðinni. Bryddað verður upp á nýjung í leshringjunum í vetur, "Orði dagsins". Við skoðum saman hugtök úr hefð okkar og veltum fyrir okkur merkingunni á bak við orðin. Á laugardaginn munum við velta fyrir okkur hugtökunum "hugur og hjarta", en í búddísku hefðinni hafa þessi tvö hugtök verið tjáð með einu og sama orðinu, sbr. chitta (úr sanskrít) og shin (kínverska) eða kokoro (japanska). Við munum skoða hvaða merkingu við leggjum í þessi hugtök og hvernig þau eiga við líf okkar og iðkun. Umfjöllun Okumura um Hjartasútruna er mjög viðamikil og verður til umfjöllunar hjá okkur yfir alla haustönnina. Fyrsti hluti textans er í þýðingu Mikhaels Zentetsu og verður hægt að nálgast hann á Grensásveginum. Komið og takið þátt alveg frá upphafi! Textar: Hljómur tómsins (tekið fyrir núna) Opinberun Hjartasútrunnar (tekið fyrir síðar) Hver er Avalokitesvara? (tekið fyrir síðar) Frá báðum hliðum (tekið fyrir síðar) Tómið - fræðilega séð (tekið fyrir síðar) Iðkun tómsins (tekið fyrir síðar)
0 Comments
Leave a Reply. |
Eldra
September 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |