Sesshin hugleiðsludagar Nátthaga hefjast næsta miðvikudag 6. október og standa til og með laugardagsins 9. október í aðsetri Zen á Íslandi að Kletthálsi 1, 2. hæð. Eins og venja hefur skapast fyrir þá höldum við Borgarsesshin á haustin, þar sem við leitumst við að færa anda iðkunarinnar inn í amstur hversdagsins. SKRÁNING FER FRAM Á KLETTHÁLSINUM EÐA Á [email protected] Þátttökugjald á sesshin er 9.000 krónur og skráning fer fram á Kletthálsinum eða með því að senda tölvupóst á [email protected]. Þeir sem ekki geta tekið þátt í öllum setunum eru beðnir um að láta vita að hve miklu leyti þeir munu taka þátt. Hægt að taka þátt aðeins á laugardeginum og kostar það 5.000 kr. Athugið líka að þeir sem greiða árgjald fá 10% afslátt af þátttökugjaldi. * Dagskráin er fyrir neðan myndina. Sesshin hefst miðvikudagskvöldið 6. október kl. 19:30 með sitjandi hugleiðslu, inngangsorðum og leiðbeiningum til þátttakenda. Síðan komum við saman næstu tvo daga, á morgnana frá kl. 07:00 - 08:30 og frá kl. 17:30 - 18:40. Laugardaginn 9. október stendur dagskráin frá kl. 07:00 - 15:15. Oryoki máltíð mun fara fram á laugardeginum. Þeir sem ekki eiga oryoki skálar eru sömuleiðis beðnir um að láta vita við skráningu.
Full dagskrá Borgarsesshins er hér fyrir neðan: Miðvikudagur 6. október 19:30 Zazen 19:45 Leiðbeinandi opnun 20:05 Kinhin 20:15 Zazen 20:50 Heitin fjögur Fimmtudagur - Föstudagur 07:00 Zazen 07:35 Kinhin 07:45 Zazen 08:20 Kyrjun - Iðkun í dagsins önn 17:30 Zazen 18:00 Kinhin 18:10 Zazen 18:40 Heitin fjögur Laugardagur 9. október 07:00 Zazen 07:35 Kinhin 07:45 Zazen 08:20 Kyrjun - Oryoki - Hlé 10:00 Samu / Vinnuiðkun 10:45 Morgunkaffi 11:15 Zazen 11:45 Kinhin 11:55 Zazen 12:25 Kyrjun - Oryoki - Hlé 13:45 Zazen 14:15 Kinhin 14:45 Zazen 15:15 Heitin fjögur-Kveðjuhringur
1 Comment
Lúðvík E. Gústafsson
5/10/2021 16:43:41
Kemst EKKI á miðvikudaginn
Reply
Leave a Reply. |
Eldra
September 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |