• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Vorsesshin 2023

24. - 28. maí 2023

nánar
Zazen hugleiðsluiðkun að Kletthálsi 1
Mánudagar
kl. 17:30 - 18:50
(engin morgunseta)

Miðvikudagar
kl. 07:20 - 08:35
Fimmtudagar
kl. 17:30 - 18:50
(engin morgunseta)

Laugardagar
kl. 08:00 - 09:40
Þegar maður lærir fyrst að sitja zazen þá getur maður ekki lært zazen til hlýtar, í heild sinni í einu höggi. Við byrjum því á að búta zazen niður í litla bita og fylgjum þeim í ákveðinni röð: að stjórna líkamanum (choshin), að stjórna andanum (chosoku) og svo að stjórna huganum (choshin). Í Eihei-koroku skrifaði Dogen: "Í zazen er mikilvægt að sitja í réttri líkamsstöðu. Næst skaltu stjórna andanum og svo róa þig niður." -Issho Fujita

Viðburðir í maí 2023

Mánudagurinn 1. maí
Frí

Laugardagurinn 6. maí
Samu vinnuiðkun

Laugardagurinn 13. maí
Oryoki kennsla

Laugardagurinn 20. maí
Zazen hugleiðsluiðkun

Miðvikudagurinn 24. - sunnudagsins 28.  maí
Sesshin í Skálholti

Mánudagurinn 22. maí
Frí

Sumardagskrá frá 1. júní 
Öll dagskrá Zen á Íslandi - Nátthaga vorið 2023
Smelltu
hér til að skoða alla dagskrá Zen á Íslandi.
Þar er að finna upplýsingar um komandi námskeið,
​ræður, leshringi og aðra viðburði.
Picture

Zen á Íslandi - Nátthagi

Zen á Íslandi - Nátthagi er búddískt félag í hinni japönsku Sótó Zen hefð og markmið félagsins er að starfrækja og viðhalda iðkun Sótó Zen búddismans á Íslandi. Iðkun Zen búddista kallast zazen, sem þýðir sitjandi hugleiðsla. Nátthagi býður félagsmönnum sínum og öllum öðrum að stunda zazen alla daga vikunnar nema sunnudaga. Félagið stendur einnig fyrir fyrirlestrum, leshringum, kynningum á hugleiðsluiðkun og lengri námskeiðum í Zen iðkun. ​ Öllum er velkomið að taka þátt í starfi Zen á Íslandi – Nátthaga, óháð trúarskoðunum, en þeir sem þess óska eru boðnir velkomnir í félagið. Aðsetur Nátthaga er að Kletthálsi 1, 110 Reykjavík.
TIL VAKNINGAR, BLESSUNAR OG VERNDAR FYRIR ALLAR VERUR
Picture
Kennari félagsins er Ástvaldur Zenki. Zenki, eins og hann er jafnan kallaður, hefur stundað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandaríska Zen-meistarans, og stofnanda Zen á Íslandi - Nátthaga, Jakusho Kwong Roshi síðan 1998. Zenki hefur allar götur síðan verið virkur iðkandi í Zen á Íslandi - Nátthaga og hefur farið árlega til Sonoma Mountain Zen Center í Kaliforníu þar sem Kwong Roshi býr.

Ástvaldur Zenki hefur auk þess fengið þjálfun í Japan árið 2016 og 2019 og í kjölfarið hlaut hann vígslu í tveimur höfuðklaustrum Sótó Zen búddismans í Japan: Sojiji og Eiheiji. Zenki er skráður og viðurkenndur prestur og kennari í hinni japönsku Sótó Zen hefð.

Árið 2018 hlaut Zenki svo dharma transmission frá Kwong Roshi. Í slíkri athöfn afhendir kennari kennsluna til nemanda síns eins og það hefur verið gert í meira en 2500 ár.
Allur alheimurinn raungerist hér og nú, augnablik eftir augnablik, í fullkomnum samruna hinsa algilda og hins afstæða, algerlega ferskur og alltaf nýr: vetur, sumar, vor og haust. Alltaf. Þetta er gjöfin okkar, lífið okkar og það er svo sannarlega til þess vinnandi að læra að þekkja það og meta til fulls. -Zenki
Skráning í Zen á Íslandi - Nátthaga
Félagsmenn Zen á Íslandi - Nátthaga eru allir sem taka þátt í starfi félagsins, bæði iðkendur, styrktaraðilar, trúfélagar og aðrir sem vilja viðhalda iðkun Sótó Zen búddisma á Íslandi.
Picture

Nýjustu fréttir

Vorsesshin 24. - 28. maí 2023
Sesshin er nokkurra daga samfelld hópiðkun og þýðir "að snerta hug og hjarta" sem vísar til þess að á Sesshin nálgumst við og verðum nánari okkar upprunalega hug. Iðkun fer fram í þögn og með vakandi athygli, þannig gefum við hvert öðru rými og einbeitum okkur að hinni einu stund. Meira...

Hvert er hugrekki munksins ... - Fyrirlestur 15. apríl 2023
Næstkomandi laugardag 15. apríl 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Hvert er hugrekki munksins í stagbætta kuflinum?“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Meira...

Afmæli Búdda næstkomandi laugardag 1. apríl 2023 
Næstkomandi laugardag, 1. apríl höldum við upp á afmæli Búdda á Kletthálsinum. Við hvetjum ykkur til að bjóða fjölskyldu og/eða vinum að skyggnast inn í okkar iðkun og upplifa styrkinn og einlægnina sem einkennir okkar athafnir. Meira...

Eins og að fálma eftir koddanum ... - Fyrirlestur 18. mars 2023
Næstkomandi laugardag 18. mars 2023 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn „Eins og að fálma eftir koddanum um miðja nótt“ að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn.  Meira...

Leshringur 4. mars 2023
Næsta laugardag 4. mars mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum textann „Hver er þinn kennari“ Meira...

​Allar fréttir frá Zen á Íslandi - Nátthaga
Ef þú vilt fá tölvupóst með upplýsingum um hvað sé að gerast hverju sinni þá getur þú líka skráð þig á póstlistann okkar hér.

Jakusho Kwong-roshi

Jakusho Kwong-roshi (f. 1935), stofnandi Zen á Íslandi - Nátthaga, er einn af arftökum Shunryu Suzuki-roshi. Hann byrjaði að iðka zen undir handleiðslu Suzuki-roshi árið 1960 og gerðist svo zen prestur 10 árum síðar og stofnaði Sonoma Mountain Zen Center í Kaliforníu árið 1973. Roshi kom fyrst til Íslands árið 1987 og hefur svo til komið árlega til landsins til að leiðbeina nemendum sínum í Zen á Íslandi - Nátthaga. Árið 1995 var honum veittur titilinn „Dendo Kyoshi“ eða Zen kennari af Soto Zen skólanum í Japan og er hann einn af níu Zen kennurum á Vesturlöndum sem hafa hlotið slíka viðurkenningu. Árið 2003 kom út bók Kwong-roshi sem ber heitið "No Beginning, No End" sem og hljóðbókin "Breath Sweeps Mind".
Picture
Vefverslun Zen á Íslandi - Nátthaga býður upp á ýmsan varning sem hefur með búddisma og hugleiðslu að gera. Sem dæmi má nefna bækur, hugleiðslupúða, reykelsi og námskeið.
Vefverslun Zen á Íslandi - Nátthaga

Þroskatakkinn

​Það eina sem þú þarft að gera, dag eftir dag, er að ýta á þroskatakkann, rétt eins og að kveikja á sjónvarpinu og sjá alheiminn birtast á skjánum. Það getur verið þreytandi að ýta endalaust á þennan takka - það virðist út í hött. En við þurfum að ástunda þessa einföldu iðkun, sitja keik og iðka frá dýpstu hjartarótum. Það er okkar ábyrgð. Það er, að fylgja lífsgildunum. 
Þessi texti er úr bókinni The Light that Shines through Infinity eftir Dainin Katagiri og er hér birtur í þýðingu Jónu Shiko.
Picture
Picture
​Hei þú! Hvað ertu að glápa? Veistu ekki að þetta snýst um þig?
Þessi tilvitnun er úr textanum Til þín eftir ​Kodo Sawaki-roshi í þýðingu Mikhael Zentetsu
Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539

Tölvupóstfang: [email protected]
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð