Hugleiðslunámskeiðið Andinn Sópar Hugann er byrjendanámskeið í Zen hugleiðslu. Námskeiðið byggir á hljóðbókinni Breath Sweeps Mind eftir Jakusho Kwong Roshi, en við munum m.a. skoða valda kafla úr hljóðbókinni í íslenskri þýðingu. Nálgun Kwong Roshi er mjög ítarleg og gaumgæfileg og snýr að öllum hliðum Zen iðkunar.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Ástvaldur Zenki og Gyða Myoji, sem bæði hafa hlotið prestsvígslu hjá Jakusho Kwong-roshi, kennara Zen á Íslandi – Nátthaga, auk þess sem Ástvaldur Zenki gegnir stöðu kennara í Nátthaga. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 14. mars 2019, kl. 17:30 - 19:00
Lengd: 4 vikur Tími: Fimmtudagar kl. 17.30 - 19.00 (lýkur 4. apríl). Kennt er í aðsetri Zen á Íslandi og er námskeiðið öllum opið, óháð trúar- og lífsskoðunum. Þátttökugjald er 15.000 kr. en námskeiðið er ókeypis fyrir þá sem greiða árgjald í Nátthaga. Innifalið í þátttökugjaldi er dagleg iðkun á meðan á námskeiðinu stendur. Skráning fer fram með því að kaupa námskeiðið í vefverslun Zen á Íslandi - Nátthaga hér á vef félagsins eða með því að smella á hnappinn hér til hliðar. |
Zen á Íslandi | Andinn sópar hugann |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |