Issho Fujita fæddist 18. apríl 1954 í Niihama, Ehime í Japan og var Zen kennari Valley Zendo, sem er iðkunarsetur Sótó Zen í Charlemont, Massachusetts í Bandaríkjunum. Fujita stundaði framhaldsnám í barnasálfræði við Háskólann í Tokyo þegar hann hætti og gerðist Zen munkur. Þegar hann var 29 ára var hann vígður Zen prestur af Koho Watanabe í Antai-ji. 1987 tók Fujita svo við hlutverki ábóta við Valley Zendo og bjó þar ásamt konu sinni Naomi og börnum þeirra, Saki og Masumi, þar til hann flutti aftur til Japans árið 2005. Árið 2010 var hann svo kosinn yfirstjórnandi Alþjóðamiðstöð Sótó Zen, staðsett í San Fransisco.
|
Zen á Íslandi
Issho Fujita
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |