SEPTEMBER 2018
Laugardagur 1. september HEFÐBUNDIN DAGSKRÁ HEFST Frá 1. september munum við iðka zazen á hefðbundnum iðkunartímum, sem sjá má hér. Á þessum degi hefst líka dagskrá haustsins sem verður eins og áður góð blanda af zazen og fræðslu. Zen ræður og leshringar skiptast á laugardagana, það verður haldið Borgarsesshin, Dagur vakandi athygli og Rohatsu ásamt söngufundum, námskeiðum og fleira. Laugardagur 1. september SETUDAGUR - AÐ LEITA SKJÓLS Við hefjum haustdagskrána með stæl og byrjum á setudegi á laugardaginn frá kl. 7:00 - 16:00. Það kostar kr. 3.500 fyrir félaga að taka þátt en aðrir greiða kr. 5.000. Setudagur er góð gjöf til sjálfs þín og tækifæri til að staldra við og vera betur til staðar í annasömu hversdagslífi. Skráning fer fram á [email protected]. |
Laugardagur 8. september
RÆÐA; ÁSTVALDUR ZENKI Að leita skjóls; Með því að leita skjóls í Búdda, Dharma og Sangha stígum við til hliðar og gefum okkur á vald fjársjóðanna þriggja, sem eru endalaus uppspretta sköpunar, visku og kærleika. Fimmtudagur 13. september NÁMSKEIÐ; ANDINN SÓPAR HUGANN (1/4) Fjórir fimmtudagar 13. september - 4. október í umsjón Ástvaldar Zenki og Gyðu Myoji. Hugleiðslunámskeiðið Andinn sópar hugann er byrjendanámskeið í Zen hugleiðslu. Námskeiðið byggir á hljóðbókinni Breath Sweeps Mind eftir Jakusho Kwong Roshi, en við munum m.a. skoða valda kafla úr henni í íslenskri þýðingu, nánar hér. Laugardagur 15. september LESHRINGUR - Að snúa útgeislun sinni innávið Þýðing Óskars Daian Ingólfssonar úr bók Kwong Roshi. En þar segir m.a.: "Hvernig getur þú meðtekið himininn ef þú ert ekki hluti af honum? Hvernig getur þú meðtekið ást ef þú ert ekki hluti af henni? Hvernig getur þú meðtekið fegurðina ef þú ert ekki fegurðin sjálf?" Fimmtudagur 20. september NÁMSKEIÐ; ANDINN SÓPAR HUGANN (2/4) Fjórir fimmtudagar 13. september - 4. október í umsjón Ástvaldar Zenki og Gyðu Myoji Laugardagur 22. september SÖNGUFUNDUR Söngufundir eru reglulegir fræðslu- og upplýsingafundir um innri og ytri starfsemi Zen á Íslandi - Nátthaga. Við hvetjum alla reglulega iðkendur til að mæta og taka þannig virkan þátt í að styðja og styrkja við iðkun Soto Zen búddisma á íslandi þannig að iðkunin megi dafna og festa rætur hér á landi um ókomna tíð. Fimmtudagur 27. september NÁMSKEIÐ / ANDINN SÓPAR HUGANN (3/4) Fjórir fimmtudagar 13. september - 4. október í umsjón Ástvaldar Zenki og Gyðu Myoji Laugardagur 29. september LESHRINGUR - Hin sönnu lífsgildi eru handan orða --- Frestað --- Í þessum leshring munum við lesa texta eftir Suzuki Roshi í þýðingu Helgu Kimyo um lífsgildin. En Suzuki Roshi sagði m.a. um lífsgildin: "Þegar ég segi 'gildi' (e. precepts), þá er það fyrsta sem kemur upp í huga ykkar eitthvað eins og Boðorðin Tíu eða einhver tíu alvarleg boð og bönn. En Zen gildin eru ekki þannig." |
OKTÓBER 2018
Fimmtudagur 4. október NÁMSKEIÐ / ANDINN SÓPAR HUGANN (4/4) Fjórir fimmtudagar 13. september - 4. október í umsjón Ástvaldar Zenki og Gyðu Myoji Laugardagur 6. október LESHRINGUR; BRYNJAR SHOSHIN - Að fylgja lífsgildunum Við lesum textann „Að fylgja lífsgildunum“ eftir Shunryu Suzuki-roshi, í þýðingu Brynjars Shoshin. En þar segir m.a.: "Að fylgja lífsgildunum er að hafa reglu á lífinu og að hafa reglu á lífinu er að iðka zazen." Laugardagur 13. október RÆÐA; ÁSTVALDUR ZENKI - Að gera það sem gott er Laugardagur 20. október SAMU Laugardagur 27. október RÆÐA; DIANE MUSHO HAMILTON - Everything same, everything different Diane Musho Hamilton og eiginmaður hennar Michael Mugaku Zimmerman eru stofnendur Two Arrows Zen sem er Zen miðstöð á tveimur stöðum í Utah, Bandaríkjunum. Annars vegar sem borgar-zen í miðbæ Salt Lake City og hins vegar er Boulder Mountain Zendo í Torrey rétt fyrir utan Capitol Reef National Park. Diane Musho var vígð sem Zen prestur af Genpo Roshi 2003 og fékk svo dharma transmission 2006. En Genpo Roshi fékk dharma transmission frá Maezumi Roshi árið 1980 og er því t.d. dharma bróðir Tetsugen Bernard Glassman og John Daido Loori. En Diane Musho er marg-verðlaunuð fyrir störf sín og hefur skrifað bækurnar Everything is Workable og The Zen of You and Me. Núna í lok október er hún á leiðinni til Íslands og er það mikill heiður að hún haldi ræðu í heimkynnum Zen á Íslandi - Nátthaga að Grensásvegi 8, 4 hæð. Finna má skemmtilegt viðtal við hana hér: http://www.nondualitymagazine.org/nonduality_magazine.7.dianemushohamilton.interview.htm Miðvikudagur 31. október - Laugardagur 3. nóvember BORGARSESSHIN - AÐ LEITA SKJÓLS |