Allir forfeður og allir búddar sem viðhalda búdda darmanu hafa gert uppréttar setur að hinni sönnu leið til vakningar, iðkandi í miðju sjálf-viðtakandi-og-notandi samadi. Þau sem hafa náð vöknun á Indlandi og Kína hafa fylgt þessari leið. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
0 Comments
Kæru félagar, Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gamalt og gott. Eins og flest ykkar vita erum við Gyða Myoji nýkomin heim eftir dvöl á Sonomafjalli þar sem ég hlaut Dharmayfirfærslu (Dharma Transmission) frá Roshi. Þetta var afskaplega ánægjuleg dvöl og biður Roshi hjartanlega að heilsa ykkur öllum. Ég segi ykkur betur frá við tækifæri. Við Myoji tókum líka þátt í athöfn sem fór fram á gamlárskvöld, en á Sonoma er gamla árið kvatt með 108 bjölluslögum ásamt því að brenna karmað í fallegri athöfn sem haldin er utandyra. Svo var líka kveikt í nokkrum blysum eins og lög gera ráð fyrir. Myndir frá athöfninni má finna á vefnum okkar undir IÐKUN > Myndir > Sonoma áramót 2018/2019. Í búddískri iðkun er karmað brennt í tákrænni athöfn. Þá er tími til að horfa til baka, líta yfir farinn veg og íhuga líf sitt og stefnu. Flest áramótaheit drukkna í mynstrunum okkar þrátt fyrir góðan ásetning eins og við vitum, karmað er sterkt og óumflýjanlegt. Með því að brenna karmað með þessum hætti látum við í ljós ósk okkar um að lífið okkar, hugsun, orð og athafnir verði til blessunar öllum lifandi verum.
Nk. laugardag, 20. janúar höldum við í Nátthaga upp á nýja árið og brennum karmað okkar í táknrænni athöfn eins og við gerðum í fyrra. Í kjölfarið fáum við okkur kaffi og eigum saman góða stund. Ykkur er að sjálfsögðu velkomið að bjóða með ykkur vinum og fjölskyldu. Ég hakka til að sjá ykkur öll! Laugardagurinn 20. janúar 2018: 08:00 Zazen 08:30 Nýársathöfn 09:00 Nýárskaffi Gassho, Zenki
Í leshringnum lesum við úr kaflanum Hin tíu mikilvægu lífsgildi: Hugur visku þar sem Daido-roshi fer yfir hin tíu mikilvægu lífsgildi og skoðar þau frá hinum ýmsu sjónarhornum. Þar segir til dæmis: Að taka líf lifandi veru er brot á fyrsta mikilvæga lífsgildinu. Samt er deyðing lífs allt í kringum okkur, alla tíð. Við tökum öll þátt í henni. Við deyðum til að viðhalda okkar eigin lífi. Sú mikilvægisskipting lífs sem er almennt viðurkennd meðal manna, þar sem við erum efst og kýr og hvítkál eru fyrir neðan, er bara handahófskennd skipting. Líf er líf. Það er allt heilagt - minnsta skordýr, gulrót, kjúklingur, manneskja. Allur matur sem við neytum er líf. Þannig er þetta á jörðinni. Það er engin vera á yfirborði þessarar plánetu sem neytir matar án þess að það sé á kostnað annars lífs. Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00, en leshringurinn tekur við að henni lokinni.
Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest. Gleðilegt ár! Nú er vetrarfíi að ljúka og viðamikil vordagskrá Zen á Íslandi - Nátthaga hefst á þriðjudaginn kemur 9. janúar og er fyrsta seta kl. 07:20 á Grensásvegi 8, 4. hæð. Nátthagi býður félagsmönnum sínum og öllum öðrum að stunda zazen alla daga vikunnar nema sunnudaga. Iðkunartíma má finna á vefnum okkar undir valmyndinni IÐKUN > Dagleg iðkun eða með því að smella á hnappinn: Á dagskrá vetrar og vors 2018 eru meðal annars einir sex leshringir. Fyrir leshring er valinn kafli úr bók um Zen þýddur á íslensku. Á leshringnum sjálfum er þýðingin lesin og spinnast þá oft mjög áhugaverðar umræðum í kringum efni hennar. Vísa má til margs skemmtilegs spjalls frá síðasta hausti um innihald þýddu kaflanna úr bókinni "Hvert augnablik er alheimurinn" eftir Dainin Katagiri. Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í leshringjum núna í vetur. Zen ræður eru líka stór hluti af dagskrá okkar en þær halda kennarar okkar, Ástvaldur Zenki og Helga Kimyo, svo til í hverjum mánuði. Efni ræðanna hefur verið mjög fjölbreytt og skemmtilegt og má til dæmis rifja upp ræðurnar "Það er ekki eftir neinu að bíða" og "Hefur hundur Búddaeðli eða ekki?" frá síðasta hausti. Það verða fjórar ræður núna í vetur og hvetjum við alla til að láta sjá sig. Námskeiðið Andinn sópar hugann hefur verið haldið bæði vor og haust síðustu árin og er engin breyting á því í ár. Námskeiðið verður á fimmtudögum frá 8. febrúar til 1. mars frá kl. 17:30-19:00. Það er bæði ætlað byrjendum og iðkendum sem eru lengra komnir. Okkur langar til að hvetja ykkur öll til að koma á námskeiðið og upplifa Zen hugleiðslu. Líka þau sem hafa stundað hugleiðslu einhvern tíma; það er alltaf gott að fríska upp á formið. Nánari upplýsingar um námskeiðið má sjá á vefnum okkar undir valmyndinni NÁMSKEIÐ > Andinn sópar hugann eða með því að smella á hnappinn: Í maí verða svo Sesshin hugleiðsludagar í Skálholti. En á Sesshin koma Zen iðkendur saman og iðka í þögn yfir nokkurra daga skeið. Dagskráin er krefjandi, hefst snemma og inniheldur iðkun, viðburði, fræðslu og fleira. Eins og almenn Zen iðkun, þá hafa hugleiðsludagar margskonar góð áhrif á þátttakendur og langar okkur því að hvetja sem flesta til að taka þátt. Til viðbótar við þessa viðburði verður til dæmis nýársathöfn laugardaginn 20. janúar, samu, samverustundir og fleira. Allir dagskrárliðir verða kynntir nánar þegar nær dregur. En dagskrána í heild sinni má sjá á vefnum okkar undir valmyndinni Á DÖFINNI > Dagskrá Nátthaga eða með því að smella á hnappinn: Með von um að sjá ykkur sem flest sem oftast.
"Til vakningar, blessunar og verndar fyrir allar verur"
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Ástvaldur Zenki og Gyða Myoji, sem bæði hafa hlotið prestsvígslu hjá Kwong-roshi, en Ástvaldur Zenki gegnir stöðu kennara í Nátthaga. Kennt er í aðsetri Zen á Íslandi á Grensásvegi 8 og er námskeiðið öllum opið, óháð trúar- og lífsskoðunum.
Þátttökugjald er 15.000 kr. en námskeiðið er ókeypis fyrir þá sem greiða árgjald í Nátthaga. Innifalið í þátttökugjaldi er dagleg iðkun á meðan á námskeiðinu stendur. Gjafabréf á námskeiðið er í boði og geta áhugasamir sent póst á gjaldkeri@zen.is. Með ósk um gleðilega hátíð og blessunar á nýju ári. Nú á laugardaginn 16. desember er síðasti iðkunardagur ársins og verður þá haldinn Dagur vakandi athygli. Dagurinn hefst að venju kl. 8:00 með hugleiðslu en svo tekur við bæði Oryoki morgunverður (við borð), Soji vinnuiðkun og leshringur. Við ljúkum svo deginum með setum og gönguhugleiðslu. Þegar við iðkum á Degi vakandi athygli leyfum við ljósi hinnar vakandi athygli að skína og iðkum af heilum hug. Að leshringnum undanskildum iðkum við í hljóði.
LESHRINGUR - WAKA LJÓÐ DOGENS Árni Björn Árnason mun leiða leshringinn þennan laugardag. En leshringurinn ber titilinn "Waka ljóð Dogens". Árni Björn ætlar að kynna fyrir okkur nokkur af waka ljóðum Dogens Zenji, með hliðsjón af lokaritgerð sinni frá japönskudeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber yfirskriftina „Svipur hins upprunalega“, en það er titillinn á þekktasta waka-ljóði Dogens, sem og helsta viðfangsefni ritgerðarinnar. Ritgerðina má finna hér í Skemmunni, rafrænu gagnasafni Háskóla Íslands. En ásamt því að vera fyrirtaks sýnishorn úr japanskri miðaldarljóðlist eru waka-ljóðin til vitnis um óvenjuleg tök Dogens á tungumálinu, en ólíkt prósaverkunum tjá þau djúpa sýn hans á veruleikann með fáum látlausum orðum. Árni Björn lauk námi í japönsku á nýliðnu vori, og hefur undanfarin ár lagt stund á zen búddisma undir handleiðslu Shohaku Okumura Roshi. ORYOKI - MORGUNMATUR AÐ HÆTTI ZEN Vinsamlega skráið ykkur til þáttöku fyrir hádegi á föstudag, með því að senda tölvupóst á gjaldkeri@zen.is, svo Tenzo geti gert viðeigandi ráðstafanir fyrir morgunmat.
Mörgum iðkendum finnst það langur tími að sitja í 4 klukkustundir í senn. En þau sem hafa setið Rohatsu segja okkur að tíminn breytist þegar maður situr zazen í langan tíma. Klukkustund getur virst sem tuttugu mínútur og tuttugu mínútur geta virst klukkustund. Þessi breytta upplifun tímans á sér stoðir í kennslu Dainin Katagiri-roshi, sem við höfum verið að lesa síðustu laugardaga. Sagan á bak við þennan dag uppljómunar er í raun saga búddismans. Hún er líka saga um andlegt ferðalag eins manns til uppljómunar, svo og saga kennslu hans og þeirra aðferða sem hann kenndi okkur til að lifa lífinu. Þegar þessi maður, Siddhartha Gautama, fann leiðina til uppljómunar þá leiddist hann af braut þjáningar, og endurfæðingar, inn á braut uppljómunar og varð þá þekktur sem hinn uppljómaði, Shakyamuni Búdda, eða bara Búdda. Siddhartha Gautama fæddist með silfurskeið í munni, í höll í Lumbini í kringum árið 563 fyrir krist. Honum var haldið frá þjáningum lífsins, veikindum og dauða, með því að hleypa honum ekki út úr höllinni þar sem hann ólst upp. En dag einn, þegar hann var vaxinn úr grasi, hafði gifst og eignast barn, fór hann úr höllinni og sá í fyrsta sinn veikan mann, gamlan mann, lík dáins manns og heilagan mann. Þessar sýnir höfðu mikil áhrif á hann og þá, 29 ára, ákvað hann að fara að heiman 29 ára og lifa sem heimilislaus maður. Hann fórnaði þannig lystisemdum þess forréttindalífs sem hann lifði til þess að leita leiða til að losna undan hinum óumflýjanlegu þjáningum sem fylgja því að eldast, veikjast og deyja. Hann fylgdi hinum ýmsu heilögu mönnum og lærði af þeim allt sem hann gat, en enginn þeirra hjálpaði honum áleiðis á leið hans undan þjáningunni. Siddhartha hitti indverskan munk sem iðkaði mjög öfgafullann sjálfsaga, sjálfsneitun og einsetu. Þar sem Siddhartha hafði iðkað hugleiðslu og komist að þeirri niðurstöðu að hugleiðslan ein og sér næði ekki markmiðinu þá prófaði hann nú að fylgja þessari iðkun öfgafulls sjálfsaga og sjálfsneitunar. Hann píndi sjálfan sig, t.d. hélt hann niðri í sér andanum endalaust og fastaði þar til rifbein hans stóðu svo til út í loftið. Svona iðkaði hann í hjartnær sex ár, en enn og aftur komst hann að þeirri niðurstöðu að þannig kæmist hann ekki undan þjáningunni, svo hann sagði líka skilið við þessa gerð iðkunar. Sagan segir að hann hafi minnst þess að hafa upplifað djúpa hugleiðslu þegar hann var ungur drengur undir eplatré á fallegum degi, og uppgötvaði þá að hann þyrfti að vinna með sínu eigin eðli til að öðlast uppljómun, ekki refsa líkama sínum heldur þyrfti hann á líkamlegum styrk og betri heilsu að halda. En hann leitaði samt ekki aftur í lúxus síns fyrra lífs heldur fylgdi því sem kallast miðjuleiðin, hvorki lúxus né fátækt, hvorki of né van. Dag einn ákvað Siddhartha svo að setjast niður við fíkjutré í Bodh Gaya. Hann ákvað að iðka hugleiðslu þar til hann myndi finna rót þjáningarinnar, og leiðina undan þjáningunni. Undir trénu sat hann inn í nóttina og öðlaðist þá skilning á sínum fyrri lífum og fyrri lífum allra skynvera, hann öðlaðist skilning á karma og að lokum skilning á að hann væri nú laus við allar hindranir og án bindinga. Þegar hann skildi að hann væri laus undan samsara sagði hinn uppljómaði Búdda: "Húsbyggir, þú sést! Þú byggir ekki meir. Búdda var uppljómaður! Hann hafði fundið það sem hann leitaði að.
Til að byrja með nægði það Búdda að hafa uppljómast og ætlaði hann bara að sitja og iðka í stöðu uppljómunar. En Brahma, konungur guðanna, kom til hans og bað hann að deila nýfundnum skilningi sínum með öllum heiminum. Búdda setti þá í gang hjól þekkingarinnar: í stað tilbeiðslu guða þá snýst búddismi um hið tímalausa mikilvægi kennslunnar, eða Darmað. Næstu 45 árin kenndi Búdda um Darmað, hann kenndi hin fjögur göfugu sannindi, hann kenndi um þjáninguna, um uppruna þjáningarinnar, að það sé til lausn undan þjáningunni og leiðina til lausnar undan þjáningunni. Búdda kenndi mörgum nemum, sem sjálfir uppljómuðust og urðu þekktir sem hinir verðugu eða göfugu. Búdda dó 80 ára gamall, líklega í kringum árið 483 fyrir krist í Kushinagar. Það er vegna þessarar stórkostlegu sögu sem við höldum uppljómunardag Búdda hátíðlegan og iðkum sitjandi hugleiðslu inn í nóttina. Með von um að þið sjáið ykkur fært að mæta.
Kenningin um karma er kennsla Búdda um hvernig við getum skilið mannlegt líf og það hvernig lífið líður í átt til framtíðar. Þetta er efni sem mikilvægt er að skoða til þess að við getum áttað okkur betur á hvernig við eigum að lifa í þessum heimi. Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00, en leshringurinn tekur við að henni lokinni eins og venja er. Allir eru velkomnir.
Zenki leggur út frá þessum samskiptum munksins og Dōgen í ræðu sinni á laugardaginn. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
Iðkun er eins og sía: á annarri hliðinni er hversdagslegt líf og á hinni hliðinni er bein reynsla af raunveruleikanum. Þessi sía er ekki einvörðungu tæki – hún verður að vera virk. Eitthvað verður að síast í gegn. Þetta er ekki spurning um að ræða hlutina; við verðum að vera lifandi! Við verðum að aðhafast! Við byrjum dagskrá laugardagsins eins og venjan er með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00 og allir eru velkomnir.
|
Eldra
May 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |