SKRÁNING ER HAFIN Árleg Sesshin hugleiðsluhelgi Zen á Íslandi - Nátthaga fer fram í Skálholti miðvikudaginn 16. maí - sunnudagsins 20. maí 2018. Skráning er hafin á zen@zen.is eða á skráningablaði sem liggur frammi á Grensásvegi. Einnig er hægt að smella á hnappinn hér að neðan: Almennt þáttökugjald er 42.000 kr. en 37.800 kr. fyrir reglulega iðkendur sem greiða árgjald. HVAÐ ER SESSHIN? Sesshin er nokkurra daga samfelld hópiðkun. Við hjá Zen á Íslandi höldum Sesshin einu sinni á ári, að vori til, og förum þá upp í Skálholt þar sem við gistum og iðkum í fjóra daga. Sesshin merkir bókstaflega "að snerta hug og hjarta", sem getur vísað til þess að í hugleiðslu á Sesshin nálgumst við og verðum nánari okkar upprunalega hug. Öll iðkun á Sesshin fer venjulega fram í þögn og með vakandi athygli, þannig truflum við ekki aðra iðkendur og einbeitum okkur að hinni einu stund. Á Sesshin hefst dagurinn kl. 04:45 og er setin zazen hugleiðsla nokkrum sinnum yfir daginn, í 30 mínútur í senn. Á dagskráinni eru einnig gönguhugleiðslur, kyrjanir, vinnuiðkanir, einkaviðtöl við kennara, ræður og annað fræðsluefni ásamt hvíldar- og matartímum. En deginum lýkur kl. 21:00 á kvöldin. Dagskráin hljómar kannski erfiðari en hún er og eiga iðkendur sem hafa komið í sitjandi hugleiðslu hjá Zen á Íslandi venjulega ekki í vandræðum með Sesshin. FRÆÐSLUSESSHIN 2018 Sesshin í ár verður með sambærilegu sniði og í fyrra, svokallað fræðslusesshin. En þá er um meiri fræðslu og samskipti milli nemenda að ræða, en á hefðbundnu Sesshin. Fræðslusesshin Zen á Íslandi er í anda "Genzo-e" námskeiðanna sem Soto Zen meistarar á borð við Nishiari Bokusan, Oka Sotan og Ian Kishizawa gerðu vinsæl snemma á 20. öldinni í Japan. Í ár munum við flétta fræðslu og rannsóknir á texta Shohaku Okumura um matmálssútrurnar saman við hina sitjandi hugleiðslu og aðra formlega iðkun. Þegar við neytum matar á Sesshin þá er það gert með hinni japönsku Oryoki aðferð. En það er hluti af þessari aðferð að fara með matmálssútrurnar, sem við ætlum að fræðast um í þetta sinn. Við köllum þetta Sesshin "Allt sem á vegi þínum verður". ORYOKI MÁLTÍÐ ER IÐKUN MILLIVEGARINS Þýski nítjándu aldar heimspekingurinn Ludwig Feuerbach sagði eitt sinn, "Við erum það sem við borðum." Reyndar erum við ekki bara það sem við borðum, heldur líka það sem við sjáum, heyrum, hugsum og gerum. Jijuyu zanmai - það samadhi sem tekur á móti eigin sjálfi og beitir eigin sjálfi - er þegar við meðtökum allt sem á veginum verður eins og það er í sjálfu sér, og tökum á móti öllum hlutum og verum sem okkar eigið sjálf. Mikilvægasta kennsla Dogens Zenji er að meðtaka þennan líkama og hug og öllu sem við mætum sem lífinu okkar. Þá verður sjálfið og allur dharmaheimurinn einn óaðgreinanlegur veruleiki. Við skulum meðtaka og nota allt sem á vegi okkar verður sem samadhi. Lífið allt er samadhi. Þetta þýðir að hver einasta athöfn hins daglega lífs verður birtingarmynd zazen iðkunar okkar. ERTU MEÐ SPURNINGU? Ef þú ert með einhverja spurningu þá endilega sendu póst á zen@zen.is.
0 Comments
Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
Óvenjuleg fæðing [Kafli úr bókinni Sagan af Siddarta prins - Búdda, boðbera friðar og kærleika eftir Jonathan Landaw í þýðingu Sigurðar Skúlasonar. Bókin er myndskreytt af Janet Brooke, en myndin sem fylgir þessum pósti er ein af hennar frábæru myndum.] Endur fyrir löngu gerðist í litlu konungsríki á Norður-Indlandi atburður sem átti eftir að hafa áhrif í öllum heiminum. Maja drottning, eiginkona hins góða konungs Súddódana, lá sofandi og dreymdi yndislegan draum. Henni fannst að hún sæi skínandi bjart ljós á himninum sem lýsti niður til hennar og í miðju ljóshafinu birtist stórfenglegur fíll. Hann var mjallahvítur með sex stórar skögulgennur. Þessi fíll kom fljúgandi úr ljósinu, færðist nær og nær drottningunni og að lokum rann hann saman við líkama hennar. Maja drottning vaknaði og fann til meiri hamingju en hún hafði nokkru sinni upplifað áður. Hún flýtti sér til konungsins og saman fóru þau á fund vitringanna við hirðina og spurðu þá hvað þessi furðulegi og dásamlegi draumur gæti táknað. Vitringarnir svöruðu: "Ó, yðar hátignir, þetta er óviðjafnanlegur draumur! Hann táknar það að drottningin muni fæða son og að prinsinn sá muni dag einn verða mikill maður. Þetta einstaka barn sem drottningin mun fæða verður ekki aðeins ykkur til gæfu, heldur gjörvöllum heiminum." Þegar konungur og drottning heyrðu þetta urðu þau yfir sig glöð. Einkum varð konungurinn glaður, því hann þráði að eignast son sem myndi erfa konungsríkið eftir hans dag. Og nú virtist ósk hans ætla að rætast.
Vitrir menn um allt konungsríkið tóku eftir þessum teiknum friðar og gleði og sögðu hver við annan í ákefð: "Einhver mikil gæfa hefur gerst. Sjáið öll þessi dásamlegu teikn! Þetta hlýtur að vera alveg einstakur dagur!" Maja drottning, sem hafði enga hugmynd um, að sú gleði sem hún fann til vegna fæðingar sonar síns, hafði strax breiðst út um allt konungsríkið, tók barnið í fang sér og sneri aftur til konungshallarinnar. Þetta gerðist í byrjun fjórða mánaðar í Indlandi (maí-júní) og tunglið var að verða fullt. Það er þessi fæðing Búdda, sem búddistar halda upp á í byrjun apríl, og við ætlum að hittast og halda uppá núna á laugardaginn kemur.
Hlakka til að sjá ykkur öll! Í gassho, -Alfred Chozetsu
Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
An unsurpassed, penetrating, and perfect Dharma En íslenska þýðingin verður að bíða leshringsins næsta laugardag.
Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. Leshringurinn hefst svo að þessu sinni rétt fyrir kl. 10. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest. Kæru söngufélagar,
Laugardagurinn 3. mars 2018:
08:00 Zazen, Kinhin og Zazen 09:20 Samu; vinnuiðkun 09:40 Kaffi og meðlæti 10:00 Söngufundur 11:30 Fundi lýkur Mikilvægt er að sem flestir séu með frá upphafi, leggi orð í belg og taki þátt í að móta framtíð Nátthaga. Sangan er einn af fjársjóðunum þremur eins og við vitum: Búdda, Darma og Sanga. Án Söngu er engin iðkun og engin uppljómun. Við gefum hvort öðru tækifæri til að iðka og lifa til blessunar allri skynveru. Til þess að svo megi vera þurfum við gott húsnæði, í því felast mörg tækifæri. Ég hlakka til að hitta ykkur og ræða framtíð Nátthaga! Níu gólfbeygjur, Zenki
Við höfum áður lesið kaflana um Hjartasútruna og Samsemd eins og margs úr þessari bók. Nú er komið að kaflanum sem heitir Kyrjun um kufl: Að rækta akur dyggðarinnar. Þessi kafli er um versið sem við kyrjum áður en við setjum á okkur rakusu og okesa eftir morgunsetu. Þegar við kyrjum þetta vers á morgnana þá förum við fyrst tvisvar með það á japönsku og svo einu sinni á íslensku: DAI ZAI GEDAP - PUKU Kufl frelsunar á sér engan endi Og í þessum kafla bókarinnar segir Okumura til dæmis: Líkaminn og hugurinn eru samansöfn af mörgum mismunandi þáttum sem eiga sér stað á þessu andartaki. Þetta breytist allt stöðugt, og því er ekki unnt að klófesta eitt né neitt sem líkamann “minn”, hug “minn”, eign “mína”. Samt sem áður festum við okkur við núverandi og tímabundið form, en þar sem allt er án sjálfs, þá getum við ekki klófest þetta form. Þegar við reynum að stjórna því, þá dregur úr lífskraftinum okkar. Þess í stað opnum við hendurnar. Þetta gerum við með því að iðka zazen. Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00, en leshringurinn tekur við að henni lokinni. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Mikilvægi lífsgildanna í lífi Zen búddhista verður líklega seint ofmetið. Kjarna þeirra er samt, eins og með margt annað í Zen, erfitt að koma í orð. Mikilvægt er því að líta ekki á þau bara frá einum sjónarhóli heldur velta þeim fyrir sér þar til andi þeirra verður manni skýr. Jakusho Kwong-Roshi kennari okkar talar um lífsgildin í bók sinni No beginning No End, þar sem hann segir meðal annars: Þegar við viðhöldum lífsgildunum og anda þeirra í því hvernig við göngum, hvernig við sitjum, hvernig við borðum, hvernig við tölum og samskiptum okkar við aðra og umhverfið, mun stöðug nærvera þeirra lýsa upp tilveru okkar. Allir eru hjartanlega velkomnir á Dharma ræðuna á laugardaginn og er aðgangur ókeypis. Athugið að dagskráin hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
Bókin er umfangsmikið rit um siðferðislegar kenningar Zen búddisma og er hún mikið notuð í undirbúningi Zen nemenda fyrir Jukai. Jukai er búddísk athöfn þar sem við göngumst formlega við lífsgildunum sextán. Þessi sextán lífsgildi skiptast í lífsgildi fjársjóðanna þriggja, hinar þrjú tæru lífsgildi og svo hin tíu mikilvægu lífsgildi. Í síðasta leshring byrjuðum við að lesa úr kaflanum um Hin tíu mikilvægu lífsgildi og náðum að ræða fyrstu fimm. Nú höldum við áfram og förum í gegnum lífsgildi sex til tíu. Þar segir til dæmis um áttunda lífsgildið, "Að gefa af örlæti og vera ekki smásál": Það er hægt að sýna örlæti með ýmsum hætti. Þetta lífsgildi er ekki bara um að gefa öðrum peninga eða efnisleg gæði. Stundum er besta gjöfin bara að gefa annarri skynveru athygli með nærveru sinni, jafnvel án þess að segja nokkurn skapaðan hlut, biðja um eitt eða neitt, án þess að reyna að segja einhverjum til, gefa eitthvað af sér, fá eitthvað til baka. Slík gjöf getur verið ótrúlega mikil og haft djúpstæð áhrif. Hún veltur á því að maður viti hvenær sé rétt að bregðast þannig við og treysti því að aðstæðurnar kalli gjöfina fram. Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00, en leshringurinn tekur við að henni lokinni. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 8. febrúar 2018, kl. 17:30 - 19:00. Það stendur í 4 vikur, einu sinni í viku á fimmtudögum frá kl. 17:30-19:00 og lýkur því 1. mars. Kennt er í aðsetri Zen á Íslandi á Grensásvegi 8, 4. hæð.
Námskeiðið er öllum opið, óháð trúar- og lífsskoðunum. Þátttökugjald er 15.000 kr. en námskeiðið er ókeypis fyrir þá sem greiða árgjald í Nátthaga. Innifalið í þátttökugjaldi er dagleg iðkun á meðan á námskeiðinu stendur. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á zen@zen.is. |
Eldra
May 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |