Næstkomandi laugardag 13. apríl 2019 er síðasti iðkunardagur fyrir vorfrí sem er til og með 25. apríl. En á laugardaginn höldum við líka leshring hjá Zen á Íslandi - Nátthaga. Í þetta sinn les Jóna Shiko textann Njóttu lífsins eftir Shunryu Suzuki-roshi í þýðingu Mikhaels Óskarssonar. Í þessum texta ræðir Suzuki-roshi um að sjá gildi hvers hlutar en vera ekki stanslaust að bera hluti saman og telja einn betri en annan. Í textanum segir hann til dæmis:
Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
0 Comments
Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. Leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Það eru mikil tímamót framundan hjá félaginu okkar Zen á Íslandi. Í janúar 2018 færði kennari okkari í yfir 30 ár, Zen meistarinn Jakusho Kwong Roshi, Ástvaldi Zenki kennsluna til að miðla henni áfram sem Zen kennari og ábóti Zen á Íslandi. Áður en Zenki verður formlega settur í embætti ábóta mun hann halda til Japans og dvelja í 3 mánuði í klaustrinu Toshoji. Ástvaldur Zenki heldur um miðjan apríl til Japans þar sem hann mun iðka undir handleiðslu Zen meistarans Seido Suzuki. Þetta er í annað sinn sem Zenki heldur utan því hann dvaldi í Toshoji í 3 mánuði árið 2016.
Til að styðja við för Ástvaldar Zenki og dvöl í Japan verða haldnir tónleikar í Guðríðarkirkju laugardaginn 6. apríl kl. 20.00 Ástvaldur Zenki mun sitja við píanóið og fær til sín frábært tónlistarfólk sem töfrar fram fallega tóna. Þau sem koma fram eru: Bjarni Arason, Björn Thoroddsen, Ellen Kristjánsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Stefán Hilmarsson og hljómsveitin Mandólín. Hljómsveitina skipa, ásamt Ástvaldi, Birgir Bragason bassaleikari og trommuleikari. Allt þetta frábæra tónlistarfólk gefur sína vinnu og færum við þeim hjartans þakkir. Miðaverð er kr. 4.500.- og hægt að kaupa miða með því að millifæra inn á reikning félagsins hér að neðan Kennitala: 491199-2539 Reikningsnúmer: 111-26-491199 ...eða kaupa miða á staðnum! Á morgun laugardaginn 16. mars 2019 heldur Zen á Íslandi - Nátthagi fyrsta leshring sinn í nýju húsnæði að Kletthálsi 1. Í þetta sinn munu Jukai nemendur okkar, sem munu taka þátt í Jukai athöfn og gerast þannig búddistar næstu helgi á eftir, lesa þýðingar úr því lestrarefni sem þeir lesa fyrir athöfnina. Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. Leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Námskeiðið er öllum opið, óháð trúar- og lífsskoðunum. Þátttökugjald er 15.000 kr. en námskeiðið er ókeypis fyrir þá sem greiða árgjald í Nátthaga. Innifalið í þátttökugjaldi er dagleg iðkun á meðan á námskeiðinu stendur.
Skráning fer fram með því að kaupa námskeiðið í vefverslun Zen á Íslandi - Nátthaga hér á vef félagsins eða með því að smella á hnappinn hér til hliðar. PS: En til skráningar án kreditkorts endilega sendið tölvupóst á zen@zen.is. Næstkomandi laugardag 16. febrúar 2019 höldum við fyrsta leshring ársins í Zen á Íslandi - Nátthaga. Í samræmi við þema ársins munum við lesa textann "Endanlegt skjól: Að leita athvarfs í Búdda, Dharma og Sangha" úr bókinni Living by Vow eftir Shohaku Okumura í þýðingu Mikhael Zentetsu. Í kaflanum segir m.a.: Ég leita athvarfs í Búdda og strengi heit með öllum skynverum; Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. Leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Næsta laugardag, 9. febrúar frá kl. 09:15 - 10:15 mun Helga Kimyo-roshi flytja Darmaræðu í húsakynnum Nátthaga að Grensásvegi 8, 4. hæð. Yfirskrift ræðunnar er "Kanzeon hjarta samúðar". Kimyo-roshi mun ræða um Kanzeon erkitýpu samúðar og hjálpar í búddismanum. Hún mun skoða og reyna að varpa ljósi á annars mjög fjölskrúðuga tilveru Kanzeon hjarta samúðar. Allir eru innilega velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. Næsta laugardag, 19 janúar frá kl. 09:15 - 10:15 mun Ástvaldur Zenki Sensei flytja Darma ræðu í húsakynnum Nátthaga að Grensásvegi 8, 4. hæð. Yfirskrift ræðunnar er "Ekkert sem heitir". Zenki talar um mikilvægi þess að taka afstöðu með lífinu. Dags daglega upplifum við tómarými sem við reynum sífellt að fylla upp í. Í búddismanum er það kallað þjáning eða Dukkha. Hvað er til ráða? Hvernig getum við lifað í sátt við allt sem er og tekið afstöðu með sjálfum okkur? Lagt frá okkur bakpokann?
Allir eru innilega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
RAFRÆN FÉLAGASKRÁ Til að halda betur utanum það hverjir félagsmenn Zen á Íslandi - Nátthaga eru þá höfum við nú tekið upp rafræna félagaskrá samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins frá síðasta ári. Í framhaldi af því langar okkur að biðja alla þá sem eru núverandi eða fyrrverandi iðkendur, styrktaraðilar eða skráðir sem trúfélagar hjá Zen á Íslandi - Nátthaga á vef Þjóðskrár að skrá sig í þessa nýju félagaskrá. Rafrænu skráninguna má nálgast með einu smelli á hnappinn hér að neðan eða á hnapp á forsíðu heimasíðunnar sem flytur þig yfir á síðuna Skráning í Zen á Íslandi. BREYTT FÉLAGSGJÖLD Einnig viljum við benda iðkendum á hækkun félagsgjalda. En þessi hækkun nú er aðallega til komin vegna breytinga hjá félaginu, með nýju húsnæði og nýjum ábóta, en ekki síst vegna hækkana á verðlagi síðan félagisgjaldið var lækkað fyrir nokkrum árum síðan. Á nýjum síðum á vef félagsins má svo finna frekari upplýsingar um félagsgjöld iðkenda Nátthaga. Styrktaraðilum viljum við benda á síðu með leiðbeiningum um fjárhagslega styrki til félagsins og að lokum á leiðbeiningasíðu fyrir félaga sem vilja skrá sig sem trúfélaga hjá Zen á Íslandi - Nátthaga á vef Þjóðskrár. Til vakningar, blessunar og verndar fyrir allar verur Megi þetta nýja ár verða okkur öllum til gæfu.
Níu beygjur, -Alfred Chozetsu
Dagskrá:
07:00 Zazen (hugleiðsla) 07:35 Kinhin (gönguhugleiðsla) 07:45 Zazen 08:20 Kyrjun 08:40 Oryoki morgunverður 10:00 Samu vinnuiðkun 10:45 Kaffi 11:15 Zazen 11:45 Kinhin 11:55 Zazen 12.25 Kyrjun 12.35 Oryoki hádegisverður 14:00 Zazen 14.30 Kinhin 14.40 Zazen 15.10 Heitin fjögur 15.20 Kveðjuhringur |
Eldra
April 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |