En við búddistar tökum á móti nýju ári eins og við tökum á móti hverjum nýjum degi, eins og hann sé sá fyrsti og sá síðasti. Við munum aldrei aftur lifa þennan dag. Þetta er hið rétta viðhorf til lífsins í okkar hverfula heimi. Allt er í stanslausu flæði og mun aldrei stoppa. Er þá eitthvað merkilegt við nýársdag? Þessu svaraði Dogen Zenji í ræðu í upphafi ársins 1241 þegar hann kenndi: Í dag er byrjun nýs árs, en líka dagur þriggja morgna. Ég segi dagur þriggja morgna því það er byrjun nýs árs, byrjun nýs mánaðar og byrjun nýs dags. Segjum sem svo að einhver [munkur] spyrði mig hvort það væri einhver Búdda kennsla [eða raunveruleiki eða raunveruleg þýðing] í upphafi nýs árs, eða ekki? Þá myndi ég svara: Það er. Segjum að munkurinn myndi þá spyrja, "Hver er Búdda kennslan í upphafi nýs árs?" Þessi fjallamunkur [Dogen sjálfur] myndi þá svara: Megi hver og einn, sitjandi eða standandi, taka við tíu þúsund blessunum. Segjum þá að munkurinn segi, "Úr því svo er, í samræmi við þessi svör, mun ég nú iðka." Þá myndi þessi fjallamunkur segja við hann: Ég hef í dag haldið yfirburðum yfir yfirburði. Nú vinsamlegast iðkið. Og iðkun hjá Zen á Íslandi - Nátthaga hefst á mánudaginn kemur 7. janúar og er fyrsta seta kl. 17:30 á Grensásvegi 8, 4. hæð. Nátthagi býður félagsmönnum sínum og öllum öðrum að stunda Zazen svo til alla daga vikunnar og má finna iðkunartímana á forsíðu heimasíðu okkar zen.is.
"Til vakningar, blessunar og verndar fyrir allar verur" Þú ert allt og allt er þú. Megi 2019 raungerast hér og nú, okkur öllum til heilla og blessunar. Níu djúpar beygjur, -Alfred Chozetsu, forstöðumaður Zen á Íslandi - Nátthaga
0 Comments
Kennt er í aðsetri Zen á Íslandi og er námskeiðið öllum opið, óháð trúar- og lífsskoðunum. Þátttökugjald er 15.000 kr. en námskeiðið er ókeypis fyrir þá sem greiða árgjald í Nátthaga. Innifalið í þátttökugjaldi er dagleg hugleiðsluiðkun á meðan á námskeiðinu stendur.
Gjafabréf á námskeiðið er í boði í vefverslun Nátthaga. Með ósk um gleðilega hátíð og blessunar á nýju ári.
Rohatsu er japanska og vísar til dags uppljómunar Búdda og hefð er fyrir því að halda daginn hátíðlegan og sitja hugleiðslu inn í nóttina. Við hjá Zen á Íslandi - Nátthaga sitjum því hugleiðslu frá kl. 22:00 föstudagskvöldið 7. desember næstkomandi og til kl. 02:00 aðfararnótt laugardagsins.
Iðkendur sem ekki hafa setið Rohatsu velta því gjarnan fyrir sér hvort þetta sé ekki langur tími til að iðka sitjandi hugleiðslu, í 4 klukkustundir. En reyndin er sú, að sögn þeirra sem áður hafa setið Rohatsu, að tíminn breytist þegar maður situr zazen í langan tíma. Klukkustund getur virst sem tuttugu mínútur og tuttugu mínútur geta virst sem klukkustund. Við viljum því hvetja alla iðkendur til að mæta og upplifa Rohatsu með okkur núna í byrjun desember mánaðar.
Það er engin seta laugardagsmorguninn á eftir. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á föstudagskvöldið. Næstkomandi laugardag 17. nóvember 2018 verður leshringur í Zen á Íslandi - Nátthaga. Við munum þá lesa textann „Dýpri merking lífsgildis“ úr bókinni The light that shines through infinity eftir Dainin Katagiri, í þýðingu Jónu Shiko og hún mun líka lesa. En í þessum texta segir m.a.: Hugljómun, blekking, helvíti, eða glorsoltnir draugar - hvað svo sem þeir eru, eru allt verur í mannheimi sem ber að sjá og virða sem Búdda. Þannig getur þú ræktað lífsgildin, skref fyrir skref, í þínu daglega lífi. Svo sjáðu og viðurkenndu fyrst allt sem Búdda. Þá getur þú dvalið í þessum sannleika og iðkað á sömu stundu og hugsanir spretta fram, blekkingar láta á sér kræla, eða hugljómun birtist, því þetta er ekkert nema virkni í heimi Búdda. Við byrjum dagskrá laugardagsins með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00. Leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Kæru félagar, Sesshin hugleiðsludagar Nátthaga fara fram 31. október - 3. nóvember næstkomandi í aðsetri Zen á Íslandi að Grensásvegi 8. Eins og venja hefur skapast fyrir þá höldum við Borgarsesshin á haustin, þar sem við leitumst við að færa anda iðkunarinnar inn í amstur hversdagsins.
Þeir sem ekki geta tekið þátt í öllum setunum eru beðnir um að láta vita að hve miklu leyti þeir munu taka þátt. Hægt að taka þátt aðeins á laugardeginum og kostar það 5.000 kr. Athugið líka að þeir sem greiða árgjald fá 10% afslátt af þátttökugjaldi. Oryoki máltíðir munu fara fram á fimmtudags- og föstudagskvöld og á laugardeginum. Þeir sem ekki eiga oryoki skálar eru sömuleiðis beðnir um að láta vita við skráningu. Full dagskrá Borgarsesshins er sem hér segir: Miðvikudagur 31. október 19:30 Zazen 19:45 Leiðbeinandi opnun 20:05 Kinhin 20:15 Zazen 20:50 Heitin fjögur Fimmtudagur - Föstudagur 07:00 Zazen 07:35 Kinhin 07:45 Zazen 08:20 Kyrjun - Iðkun í dagsins önn 17:00 Zazen 17:30 Kinhin 17:40 Zazen 18:10 Kyrjun - Oryoki - Hlé 19:20 Zazen 19:55 Kinhin 20:05 Zazen 20:40 Heitin fjögur Laugardagur 3. nóvember
07:00 Zazen 07:35 Kinhin 07:45 Zazen 08:20 Kyrjun - Oryoki - Hlé 10:00 Samu / Vinnuiðkun 10:45 Morgunkaffi 11:15 Zazen 11:45 Kinhin 11:55 Zazen 12:25 Kyrjun - Oryoki - Hlé 14:00 Zazen 14:30 Kinhin 14:40 Zazen 15:10 Heitin fjögur-Kveðjuhringur Það er okkur hjá Zen á Íslandi - Nátthaga mikill heiður að kynna Diane Musho Hamilton sem ræðumann okkar laugardaginn 27. október næstkomandi frá kl. 9:15 - 10:15. Diane ætlar að halda ræðu sína "Everything same, everything different." Diane Musho er margverðlaunaður sáttasemjari, leiðbeinandi, Zen kennari og rithöfundur. Hún hefur stundað hugleiðslu í yfir 30 ár og er hún ásamt eiginmanni sínum Michael Mugaku Zimmerman stofnandi Two Arrows Zen sem er Zen miðstöð í Utah, Bandaríkjunum. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
DIANE MUSHO HAMILTON - RITHÖFUNDUR Diane Musho skrifaði bókina Everything is Workable: A Zen Approach to Conflict Resolution árið 2013. En í þessari bók tekst Diane á við að leysa úr deilumálum á einstakan hátt. Hún blandar saman visku Zen iðkunar, nýja leið til andlegrar iðkunar (sem kynnt var af Ken Wilber í bók hans Integral Spirituality) ásamt sinni eigin reynslu sem sáttasemjari til þess að sýna hvernig líta megi á deilur á nýjan hátt: í raun sem andlega iðkun. Hún skrifaði síðan The Zen of You and Me: A Guide to Getting Along with Just About Anyone árið 2017. En í þeirri bók segir Diane að fólk sem fer í taugarnar á okkur geti í raun verið okkar bestu kennarar. Að það snúist ekki um að líta fram hjá ólíkindum okkar, eins og oft er kennt, heldur að skoða muninn okkar á milli af forvitni og samkennd því þessi munur veitir okkur leið til dýpri tengingar en ella. Að lokum má nefna að Diance Musho kom fram í bókinni The Hidden Lamp: Stories from Twenty-Five Centuries of Awakened Women, þar sem teknar eru saman sögur af hundrað búddískum konum frá tíma Búdda til dagsins í dag. Hlakka til að sjá ykkur öll laugardaginn 27. október. Athugið að dagskráin hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
Að fylgja lífsgildunum í okkar daglega lífi og svo að iðka Zazen virðast mjög ólíkir hlutir, en eru það í raun ekki. Í Zazen, jafnvel þótt iðkun þín sé ekki fullkomin, ef þú iðkar bara okkar leið, þá er uppljómun þegar til staðar því iðkun okkar er tjáning á búddahug. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Athugið að dagskrá laugardagsins hefst með sitjandi hugleiðslu kl. 08:00.
|
Eldra
April 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |