|
Í ágúst á síðasta ári tilkynnti Kwong Roshi að Ástvaldur Zenki tæki við sem ábóti Zen á Íslandi – Nátthaga í takt við ný lög félagsins. Næstkomandi laugardag frá kl. 15–17 ætlum við að fagna þessum áfanga og að Zenki sé formlega orðinn ábóti Zen á Íslandi – Nátthaga. Ástvaldur Zenki hefur stundað Zen‑hugleiðslu undir handleiðslu kennara okkar og stofnanda Zen á Íslandi – Nátthaga, Jakusho Kwong Roshi, allt frá árinu 1998. Zenki hlaut jafnframt þjálfun í Japan árin 2016 og 2019 og í kjölfarið vígslu í tveimur höfuðklaustrum Sótó Zen búddismans: Sōjiji og Eiheiji. Árið 2018 hlaut Zenki síðan dharma transmission frá Kwong Roshi. Í slíkri athöfn er kennslan flutt frá kennara til nemanda í óslitinni hefð sem spannar rúmlega 2500 ár. Allur alheimurinn raungerist hér og nú, augnablik eftir augnablik, í fullkomnum samruna hinsa algilda og hins afstæða, algerlega ferskur og alltaf nýr: vetur, sumar, vor og haust. Alltaf. Þetta er gjöfin okkar, lífið okkar og það er svo sannarlega til þess vinnandi að læra að þekkja það og meta til fulls. -Zenki Athöfnin á laugardag er táknræn þar sem við, sem Sangha, tökum á móti nýjum ábóta og opnum þannig nýjan kafla í sögu félagsins. Saman stígum við inn í framtíðina með íslenskum ábóta sem mun leiða og þróa iðkun okkar á komandi árum. Í athöfninni mun Kwong Roshi ávarpa okkur á Zoom, tónlist mun óma og að henni lokinni njótum við kaffis/te og með því.
Með von um að sem flest ykkar sjái sér fært að vera með okkur 🌿🙏
0 Comments
Leave a Reply. |
Eldra
February 2026
HöfundurZen á Íslandi Efni |
| Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
|
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |
RSS Feed