|
Sesshin hugleiðsludagar Nátthaga hefjast miðvikudag 20. maí og standa til og með laugardeginum 23. maí í aðsetri Zen á Íslandi - Nátthaga að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við bregðum út af hefðinni í ár og höldum Borgarsesshin að vori, en í haust verður haldið heillrar viku Sveitasesshin.
Í sesshin æfum við okkur í þögn og athygli í öllum athöfnum, með skýru formi og hlýjum stuðningi Söngunnar. Á laugardeginum dýpkum við iðkunina enn frekar með heilum setudegi sem sameinar orkuna úr vikunni í eina heild. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla, bæði fyrir byrjendur og þá sem vanir eru: að næra tengsl sín við Búdda, Sönguna og Darmað, fá ferskt sjónarhorn á streitu og hraða dagsins, og finna hvernig iðkunin getur orðið lifandi hluti af lífi okkar hér og nú. Skráning fer fram á heimasíðu okkar hér: Borgarsesshin 2026 - Zen á Íslandi (þið getið líka smellt bara á hnappinn). Þátttökugjaldið er 10.000 kr. og bankakrafa verður stofnuð þegar skráning hefur farið fram. Sem sagt, dagskráin hefst á miðvikudagskvöldið 20. maí kl. 19:30 með sitjandi hugleiðslu, inngangsorðum og leiðbeiningum til þátttakenda. Síðan tekur dagskráin við eins og hér segir. Athugið að Oryoki máltíð mun fara fram á laugardeginum. Þeir sem ekki eiga oryoki skálar eru beðnir um að tilgreina það við skráningu (sjá skráningaform).
Full dagskrá Borgarsesshins er hér fyrir neðan: Miðvikudagurinn 20. maí • 19.30 Zazen • 19:45 Leiðbeinandi opnun • 20.05 Kinhin • 20.15 Zazen • 20.50 Heitin fjögur Fimmtudagurinn 21. maí & Föstudagurinn 22. maí • 07:00 Zazen • 07:35 Kinhin • 07:45 Zazen • 08:20 Kyrjun Iðkun í dagsins önn • 19:30 Zazen • 20:00 Kinhin • 20:10 Zazen • 20:40 Heitin fjögur Laugardagurinn 23. maí • 07:00 Zazen • 07:35 Kinhin • 07:45 Zazen • 08:20 Kyrjun • Oryoki & hlé • 10:00 Samu / Vinnuiðkun • 10:45 Morgunkaffi • 11:15 Zazen • 11:45 Kinhin • 11:55 Zazen • 12:25 Kyrjun • Oryoki & hlé • 13:30 Zazen • 14:00 Kinhin • 14:10 Zazen • 14:40 Heitin fjögur & kveðjuhringur
0 Comments
Leave a Reply. |
Eldra
May 2026
HöfundurZen á Íslandi Efni |
| Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
|
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |
RSS Feed