Með því að læra að iðka hugleiðslu ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfa sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum. Kennari er Ástvaldur Zenki Traustason, kennari Zen á Íslandi Hefst: 11. september 2025 Hvar: Klettháls 1, Reykjavík Tími: Fimmtudagar frá 17.30-19.00 Verð: 25.000 krónur Lengd: 4 skipti (lýkur 02. október ) Innifalið í námskeiðsgjaldi er þátttaka í allri dagskrá hjá Nátthaga á meðan námskeiðið varir og eru þátttakendur hvattir til að prófa að taka þátt í daglegri iðkun samkvæmt dagskrá. Þátttakendum er einnig velkomið að taka þátt í fræðsluviðburðum sem boðið er upp á: leshringjum, fyrirlestrum og fleiru. Námskeiðið er ætlað byrjendum sem lengra komnum og öllum þeim sem þrá að lifa lífinu lifandi og með vakandi athygli. Iðkun zazen er grundvöllur þess sem í daglegu tali kallast núvitund (e. mindfulness) eða vakandi athygli. Með því að læra að iðka Zazen ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfa sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum. Markmið námskeiðsins er m.a.: Að kenna öndun og vakandi athygli í zazen, sitjandi hugleiðslu. Að vinna með líkamann og auka líkamsvitund Að útbúa stað heima sem er ætlaður hugleiðslu. Að byggja upp hugleiðslurútínu í daglegu lífi Að læra hefðbundin iðkunarform í setusal Zen Búddista og iðka zazen með öðrum. Ath. Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir námskeiðinu Allir eru hjartanlega velkomnir í nýtt húsnæði okkar að Kletthálsi 1 og er námskeiðið óháð trúar- eða lífsskoðunum.
0 Comments
|
Eldra
February 2026
HöfundurZen á Íslandi Efni |
| Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
|
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |

RSS Feed