Tveir stjórnarmenn hafa lokið störfum í stjórn félagsins og munum við því kjósa stjórnarmenn á þessum aðalfundi. Þar að auki munum við kjósa varamann og skoðunarmann. Til þeirra er vilja bjóða sig fram þá er velkomið að vera í sambandi við forstöðumann, stjórnarmenn, fráfarandi varamann eða skoðunarmann, til að kynna sér starfið. Framboð þurfa ekki að berast fyrir fundinn - það nægir að lyfta upp hendi þegar kallað verður eftir framboðum. Til þeirra er vilja gera tillögu að lagabreytingu þá óskum við eftir að ferli lagabreytinga sem sett hefur verið upp sé fylgt, og að slíkum tillögum að lagabreytingum verði komið til okkar eigi síðar en fimm (5) dögum fyrir aðalfund. Til viðbótar við þessa tilkyningu hér munum við senda aðra tilkynningu þremur (3) dögum fyrir aðalfund og munu öll gögn fyrir fundinn þá vera aðgengileg og þau kynnt í þeirri tilkynningu. Við munum sitja hugleiðslu frá kl. 8:00 og aðalfundurinn hefst kl. 10:00. Í anda Zen. Alfred Chozetsu forstöðumaður Zen á Íslandi - Nátthaga
0 Comments
Leave a Reply. |
Eldra
March 2026
HöfundurZen á Íslandi Efni |
| Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
|
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |
RSS Feed