• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Forsala

Ekkert upphaf, enginn endir
Jakusho Kwong Roshi
Brynjars Shoshin Kristinssonar, þýðandi

Bókin 'Ekkert upphaf, enginn endir' eftir Jakusho Kwong Roshi kemur nú út í þýðingu Brynjars Shoshin Kristinssonar eftir langan aðdraganda. Jakusho Kwong Roshi er bandarískur zen kennari af kínversku bergi brotinn og kynntist zen á öndverðum 7.áratugnum í San Francisco. Beatnikar og hippar sóttu í kennslu Shunryu Suzuki Roshi og úr varð mikil hreyfing. Eftir andlát Suzuki Roshi held Jakusho Kwong til fjalla og hefur búið á Sonoma fjalli síðan 1973. Þar hefur hann kennt og iðkað zen í 50 ár og varð níræður á dögunum. Frásagnir hans og lýsingar eru oft á tíðum skrautlegar og jafnvel sprenghlægilegar en ná einhvern veginn að koma samt beint að kjarna zen-iðkunar á sama tíma. Kwong vandi komur sínar til Íslands og Pólands á árunum 1987 til 2016 og byggði upp iðkunarhópa á þessum tveim stöðum. Meðan margir kennarar hafa haldið úti útibúum um allan heim, hélt hann sig við þessa þrjá hópa. Eitt sinn spurði grunlaus ferðalangur hann hver væri kjarninn í hans kennslu. Hann svaraði um hæl: 'Ég hef setið á þessu fjalli í 40 ár'. Stöðugleiki og staðfesta er því eitthvað sem einkennir kennsluna og er mikill heiður að fá þessa bók loksins á íslensku. Við formála Thich Nhat Hanh bætist íslenskur formáli Helgu Kimyo Roshi þar sem hún rekur tengsl hans við Ísland og þar með jafnframt sögu Nátthaga - Zen á Íslandi. Bók sem leynir á sér og hægt er að lesa oft og mörgum sinnum, í heilu lagi eða hluta og birtir alltaf eitthvað nýtt í hvert skipti.
Picture
Forskráning til kaupa bókina þegar hún kemur út:
Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539

Tölvupóstfang: [email protected]
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð