• Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
    • Skráning
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð
Zen á Íslandi

Ferli lagabreytinga

Ferli lagabreytinga

Vilji félagsmaður leggja fram tillögu að lagabreytingu á aðalfundi er óskað eftir að slíkar tillögur séu settar upp á skýran og formlegan hátt. Þetta tryggir að allir félagsmenn geti kynnt sér þær áður en fundurinn fer fram. Allar rétt uppsettar tillögur að lagabreytingum verða lagðar fram með öðrum gögnum fyrir aðalfundinn í samræmi við lög félagsins.

Síðasti skiladagur tillögu að lagabreytingu

Til að tryggja að tillögur að lagabreytingum nái í fundargögn sem birt verða minnst 3 dögum fyrir aðalfund samkvæmt lögum félagsins, skal senda inn tillögur að lagabreytingum í síðasta lagi fimm (5) dögum fyrir aðalfund. Þannig tryggist að:
  • Tillagan nái inn í lögbundin fundargögn,
  • Félagsmenn hafi tíma til að kynna sér hana,
  • Umræðan á aðalfundinum verði skýr, heiðarleg og vel undirbúin.

Uppsetning tillögu að lagabreytingu

Tillagan skal innihalda:
  • Fullt nafn þess sem leggur tillöguna fram
  • Númer og fullt heiti greinar sem á að breyta.
  • Upprunalegt orðalag greinar, eða viðeigandi hluta hennar.
  • Nýtt fullkomlega mótað orðalag, sem koma skal í stað upprunalegs orðalags.
  • Stuttur rökstuðningur fyrir tillögunni (1–3 setningar).

Skil á tillögu að lagabreytingu

Tillögunni skal skila svona:
  • Rafrænt með tölvupósti á tölvupóstfangið [email protected].
  • Fyrirsögn tölvupóstsins: „Lagabreytingartillaga – Aðalfundur {ártal}".
  • Skal innihalda fullbúna tillögu sem texta, PDF eða Word skjali.

Móttaka tillögu að lagabreytingu

Þegar tillaga að lagabreytingu er móttekin þá:
  • Staðfestir stjórn uppsetningu tillögunnar að lagabreytingu
  • Stjórn mun hafna tillögum sem ekki eru fullkomlega rétt uppsettar með tillögu að réttri uppsetningu
  • Sendir tölvupóst til baka og staðfestir móttöku tillögunnar eða höfnun hennar
  • Ef tillagan er samþykkt þá kemur stjórn tillögunni fyrir í gögnum fyrir aðalfund

Meðhöndlun á aðalfundi

Undir dagskrárliðnum "Lagabreytingar" verða allar tillögur að lagabreytingum teknar fyrir í þeirri röð sem þær bárust stjórn. Athugið að samþykktar tillögur taka ekki gildi fyrr en að aðalfundi loknum. Þess vegna geta tvær tillögur snúið að sömu grein og sama orðalagi, en lögum verður breytt til samræmis við síðustu tillöguna sem er samþykkt.

Fyrir hverja tillögu:
  • Tillagan er að fullu lesin upp af fundarstjóra (sjá innihald tillögu hér að ofan)
  • Sá sem lagði tillöguna fram fær orðið til frekari kynningar á tillögunni.
  • Fundarstjóri stýrir umræðum um tillöguna.
  • Tillagan er borin undir atkvæði.

Atkvæðagreiðsla á aðalfundi

Til að lagabreyting sé samþykkt þarf hún að hljóta að minnsta kosti 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi, skv. 11. gr. laga félagsins. Ef hún fær ekki 2/3, fellur hún.

Gildistaka nýrra samþykktra laga félagsins

Ef tillaga er samþykkt tekur hún gildi strax að aðalfundi loknum, samkvæmt 11. gr. laga félagsins.

Forstöðumaður uppfærir formleg lög félagsins:
  • Ný lög félagsins munu berast fundargestum sem skrá sig fyrir þeim
  • Ný lög verða uppfærð á heimasíðu félagsins eins skjótt og auðið er.
Vertu vinur okkar á Facebook
Félag
​Zen á Íslandi-Nátthagi
​kt. 491199-2539

Tölvupóstfang: [email protected]
​Heimilisfang
Kletthálsi 1
110 Reykjavík
​
Leiðbeiningar á ja.is
Bankareikningur
kt. 491199-2539
​reikn. 111-26-491199
  • Heim
  • Dagskrá
  • Fréttir
  • Námskeið
    • Skráning
  • Nátthagi
    • Um Nátthaga
    • Skráning í félagið
    • Lög félagsins
    • Kennarar okkar >
      • Ástvaldur Zenki
      • Helga Kimyo
      • Jakusho Kwong
      • Shunryu Suzuki
    • Hvernig byrjar maður?
    • Myndir
  • English
    • About Night Pasture
    • Practical Information
    • Daily Practice
    • Retreats
  • Lykilorð