Á morgun, mánudaginn 14. júní ætlum við að nota tímann frá 17:30 - 19:00 til að gera húsnæðið okkar að Kletthálsi hreint fyrir sumarfrí. Okkur hlakkar til að sjá ykkur sem flest.
0 Comments
Þann 1. júní hefst sumariðkun og sitjum við þá mánudaga til fimmtudaga samkvæmt iðkunardagskrá. Okkur hlakkar til að sjá ykkur sem oftast í sumar.
Endilega takið þátt í þessum sérstaka viðburði á morgun. Þið skráið ykkur með því að smella á hnappinn á upplýsingasíðunni: https://www.smzc.org/beyond-a-dream-film-series.
Við munum sitja hugleiðslu frá kl. 17:30 og svo hefst aðalfundurinn kl. 19:00.
Vonir okkar standa til þess að reglur um samkomubann verði rýmkaðar fimmtudaginn 6. maí næstkomandi . Í takt við þessar vonir þá reiknum við með að byrja aftur að sitja hugleiðslu á Kletthálsi 1 næsta laugardag og auglýsum nú Vorsesshin Zen á Íslandi - Nátthaga í Skálholti frá miðvikudeginum þar á eftir. Vorsesshin Zen á Íslandi verður haldið í Skálholtsbúðum 12-16. maí 2021 undir yfirskriftinni Stefnumót við lífið!
Dagskráin hjálpar iðkendum að gefa sig fyllilega að því sem á vegi þeirra verður hverju sinni, í hugleiðslusetum, gönguhugleiðslu, kyrjun, vinnuiðkun og sameiginlegum máltíðum, en þátttakendum gefst líka tími til hvíldar á milli dagskrárliða. Máltíðir fara fram í formlegri oryoki athöfn þrisvar sinnum á dag en utan þeirra er boðið upp á kaffi og snarl í hvíldarpásum.
Þáttökugjald er 42.000 kr. en 37.800 kr. fyrir iðkendur sem greiða árgjald, og skráning er á zen@zen.is. En vegna tveggja metra reglunnar höfum við ekki mörg pláss og langar okkur því að biðja ykkur um að skrá ykkur sem fyrst. Athugið að það verður boðið upp á oryoki kennslu í setunni að Kletthálsi 1 næsta laugardag. Með von um að sjá ykkur næsta laugardag og svo í Skálholti. Djúpt gassho.
Í ljósi nýjustu frétta af COVID-19 faraldrinum og hertum aðgerðum stjórnvalda hefur stjórn Zen á Íslandi - Nátthaga aftur ákveðið að dagleg iðkun okkar fari fram með notkun Zoom. En við munum sitja á svo til sömu tímum og við erum vön að sitja uppi á Kletthálsi 1. Dagskráin næstu 3 dagana, fimmtudag ti laugardags, fram að vorfríi, má sjá á myndinni sem fylgir. Endilega takið þátt með því að smella á hnappinn hér að neðan eða notist við neðangreint Zoom kenni eða hlekk. Zazen @ Nátthagi Zoom kenni: 847 6507 5564 Zoom lykilnúmer: 000000 (6 núll) Zoom hlekkur: https://us02web.zoom.us/j/84765075564 "Þó að hornsteinn iðkunar okkar sé að hittast og iðka saman sem Sanga þá er iðkun okkar án landamæra. Heimurinn og þú eruð eitt, það sem þú gerir fyrir sjálfan þig gerirðu fyrir heiminn líka." -Ástvaldur Zenki Djúpt gassho og okkur hlakkar til að sjá ykkur sem flest.
Heitið er punkturinn þar sem lífsgildin, zazen og öll heimspekin mætast. Í Zen miðar allt að þessum mótum; allt snýr aftur til þessa kjarna hugareðlisins því hann er uppsprettan. -Kwong-roshi Við byrjum dagskrá laugardagsins með zazen, eða sitjandi hugleiðslu, kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Djúpt Gassho. Næstkomandi laugardag 27. febrúar 2021 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn "Stefnumót við lífið" að Kletthálsi 1 og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. "Ert þú tilbúin/n til að sjá skýrt það sem er hér og nú og býrðu yfir mildi og hugrekki til að líta ekki undan? Að setjast í zazen hugleiðslu er stefnumót við lífið, þitt eigið líf hér og nú. Með öllu því sem fylgir, ekkert undanskilið, bara þú og lífið." -Ástvaldur Zenki Eins og áður segir verður fyrirlesturinn í beinu streymi á fésbókinni en einnig er hægt að koma og sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og hlusta á fyrirlesturinn þar.
Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.
Við byrjum dagskrá laugardagsins með zazen, eða sitjandi hugleiðslu, kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Djúpt Gassho. |
Eldra
April 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |