0 Comments
Núna um helgina, 16. - 20. maí, lauk dásamlegu Vorsesshin Nátthaga í Skálholti. Þetta var dálítið öðruvísi Sesshin þar sem við vorum ekki í Skálholtsbúðum eins og síðustu ár heldur vorum við í aðalbyggingu Skálholtsskóla og með eldhús-aðstöðu í Selinu. Þessi aðstaðan var nákvæmlega nóg, og hélt hún fallega utan um iðkun okkar og gerði þetta Sesshin í raun að lúxus-Sesshin. Zazen hugleiðsla eru grunnur Zen iðkunar og var það líka á þessu Vorsesshin. Í hugleiðslunni tökumst við á við líkama okkar og hugsanir, við finnum og leyfum. Hugsanir koma og fara og við sveiflumst fram og til baka, kannski dálítið eins og veðrið í Skálholti, eina mínútuna var hávaða rok svo hvein í og grenjandi rigning, en næstu mínútuna var svo sól og logn. Týpískt íslenskt veður og týpísk mannleg hugsun.
Þetta Sesshin var svokallað Genzo-e Sesshin þar sem Darmafræðsla er fyrirferðarmikil. Fræðslan var undir stjórn Mikhael Zentetsu og snerist að þessu sinni um Oryoki og Matmálssútrurnar. Mikhael hafði þýtt mikinn texta Okumura-roshi um sútrurnar, sem við lásum saman og ræddum um. Svo settum við saman spurningar og dældum á óundirbúna kennara okkar. Úr varð mjög skemmtilegt spjall. Við kunnum Mikhael sérstakar þakkir fyrir að halda utan um fræðsluna á sinn einstaka hátt. Þar að auki bauð Ástvaldur Zenki okkur iðkendunum uppá Dokusan, sem er prívat viðtal milli kennara og nemanda. Það var mikil ánægja með þessi viðtöl og þökkuðu margir iðkendur sérstaklega fyrir þau í kveðjuhringnum í lok helgarinnar. Einnig hélt Zenki skemmtilega Darmaræðu á laugardeginum þar sem hann fræddi okkur bæði um fyrstu ár iðkunar sinnar með Nátthaga, las áhrifamikið ljóð eftir Uchiyama-roshi og kenndi Darma eins og honum einum er lagið. Eftir góða iðkun og miklar kyrrsetur fékk líkaminn langþráða hreyfingu í göngutúrum um fallegt umhverfi Skálholts, þegar veður leyfði. Þegar veðrið var ekki gott til útiveru þá leiddi Mikhael Zentetsu okkur í Qigong æfingar, sem var mjög vel tekið. En Qigong æfingar hafa ekki verið stundaðar á Sesshin hjá Nátthaga í nokkur ár þótt þau hafi verið reglulegur siður hér áður fyrr. Skemmtilegt. Þetta Sesshin snerist dálítið um mat, kannski óumflýjanlega þar sem Darmafræðslan var um Matmálssútrurnar og sumir iðkendur voru að kynnast Oryoki í fyrsta sinn. En fyrir þá sem höfðu kynnst Oryoki áður þá dýpkaði stúdering okkar á Matmálssútrunum óhjákvæmilega Oryoki iðkun okkar á matmálstímum. Að vera Tenzo, Zen kokkur, á Sesshin er í sjálfu sér stórt hlutverk, en þegar eldhúsaðstaðan er þar að auki í öðru húsi en iðkunaraðstaðan þá verður álagið enn meira. Brynjar Shoshin Tenzo og þjónarnir hverju sinni þurftu að hlaupa með mat milli húsa þegar Oryoki fór fram í Zendo-inu. Svo vel var að þessu öllu staðið að við hinir iðkendurnir tókum í raun ekkert eftir þessu og nutum bara kræsinganna í hvert sinn. Mikið þakklæti til Brynjars Shoshin fyrir indælan mat. Svo kunnum við Ino okkar, Gyðu Myoji, sérstakar þakkir fyrir að stjórna þessu öllu og í raun búa til þessa yndislegu helgi fyrir okkur öllsömul. Okkur langar að þakka kennurum okkar, Ástvaldi Zenki og Helgu Kimyo, fyrir alla þeirra innsýn og leiðbeiningu til handa Darmanu og öllum skynverum. Að lokum viljum við svo þakka öllum þeim sem mættu og tóku þátt, fyrir yndislega helgi saman. Hlakka til að sjá ykkur öll niðri á Grensásvegi á komandi vikum, í sumar og svo í haust á nýjum stað. Kolbeinn Seido tók fullt af flottum myndum eins og þessi hópmynd sem hér fylgir gefur glögglega til kynna. Hann hefur góðsamlega deilt þeim með okkur hér á heimasíðu okkar. Njótið vel.
Þegar tenzo eldar þá er maturinn Búdda og eldamennskan er zazen.
Oryoki með Zen á Íslandi fer nokkurnveginn fram eins og sýnt er á myndbandinu hér að neðan. Samt ekki alveg og viljum við því bjóða ykkur öllum að koma og iðka Oryoki með okkur á laugardaginn kemur.
Morguninn hefst með zazen kl. 08:00 og allir eru velkomnir.
ENDILEGA TILKYNNIÐ MÆTINGU FYRIRFRAM Á ZEN@ZEN.IS SKRÁNING ER HAFIN Árleg Sesshin hugleiðsluhelgi Zen á Íslandi - Nátthaga fer fram í Skálholti miðvikudaginn 16. maí - sunnudagsins 20. maí 2018. Skráning er hafin á zen@zen.is eða á skráningablaði sem liggur frammi á Grensásvegi. Einnig er hægt að smella á hnappinn hér að neðan: Almennt þáttökugjald er 42.000 kr. en 37.800 kr. fyrir reglulega iðkendur sem greiða árgjald. HVAÐ ER SESSHIN? Sesshin er nokkurra daga samfelld hópiðkun. Við hjá Zen á Íslandi höldum Sesshin einu sinni á ári, að vori til, og förum þá upp í Skálholt þar sem við gistum og iðkum í fjóra daga. Sesshin merkir bókstaflega "að snerta hug og hjarta", sem getur vísað til þess að í hugleiðslu á Sesshin nálgumst við og verðum nánari okkar upprunalega hug. Öll iðkun á Sesshin fer venjulega fram í þögn og með vakandi athygli, þannig truflum við ekki aðra iðkendur og einbeitum okkur að hinni einu stund. Á Sesshin hefst dagurinn kl. 04:45 og er setin zazen hugleiðsla nokkrum sinnum yfir daginn, í 30 mínútur í senn. Á dagskráinni eru einnig gönguhugleiðslur, kyrjanir, vinnuiðkanir, einkaviðtöl við kennara, ræður og annað fræðsluefni ásamt hvíldar- og matartímum. En deginum lýkur kl. 21:00 á kvöldin. Dagskráin hljómar kannski erfiðari en hún er og eiga iðkendur sem hafa komið í sitjandi hugleiðslu hjá Zen á Íslandi venjulega ekki í vandræðum með Sesshin. FRÆÐSLUSESSHIN 2018 Sesshin í ár verður með sambærilegu sniði og í fyrra, svokallað fræðslusesshin. En þá er um meiri fræðslu og samskipti milli nemenda að ræða, en á hefðbundnu Sesshin. Fræðslusesshin Zen á Íslandi er í anda "Genzo-e" námskeiðanna sem Soto Zen meistarar á borð við Nishiari Bokusan, Oka Sotan og Ian Kishizawa gerðu vinsæl snemma á 20. öldinni í Japan. Í ár munum við flétta fræðslu og rannsóknir á texta Shohaku Okumura um matmálssútrurnar saman við hina sitjandi hugleiðslu og aðra formlega iðkun. Þegar við neytum matar á Sesshin þá er það gert með hinni japönsku Oryoki aðferð. En það er hluti af þessari aðferð að fara með matmálssútrurnar, sem við ætlum að fræðast um í þetta sinn. Við köllum þetta Sesshin "Allt sem á vegi þínum verður". ORYOKI MÁLTÍÐ ER IÐKUN MILLIVEGARINS Þýski nítjándu aldar heimspekingurinn Ludwig Feuerbach sagði eitt sinn, "Við erum það sem við borðum." Reyndar erum við ekki bara það sem við borðum, heldur líka það sem við sjáum, heyrum, hugsum og gerum. Jijuyu zanmai - það samadhi sem tekur á móti eigin sjálfi og beitir eigin sjálfi - er þegar við meðtökum allt sem á veginum verður eins og það er í sjálfu sér, og tökum á móti öllum hlutum og verum sem okkar eigið sjálf. Mikilvægasta kennsla Dogens Zenji er að meðtaka þennan líkama og hug og öllu sem við mætum sem lífinu okkar. Þá verður sjálfið og allur dharmaheimurinn einn óaðgreinanlegur veruleiki. Við skulum meðtaka og nota allt sem á vegi okkar verður sem samadhi. Lífið allt er samadhi. Þetta þýðir að hver einasta athöfn hins daglega lífs verður birtingarmynd zazen iðkunar okkar. ERTU MEÐ SPURNINGU? Ef þú ert með einhverja spurningu þá endilega sendu póst á zen@zen.is.
|
Eldra
April 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |