Að snerta hughjartað er fimm þátta sería á Storytel þar sem Ástvaldur Zenki fjallar um Zen iðkun á einlægan hátt. Þættirnir veita dýrmæta innsýn í Zen Búddisma og gildi iðkunarinnar í hversdagslegu lífi. En þar segir Zenki meðal annars:
Þættina má nálgast á Storytel og með hlekknum hér:
https://www.storytel.com/is/is/series/43385-A-snerta-hughjarta Vonum við að sem flesti ykkar getið notið vel.
1 Comment
Næstkomandi laugardag 17. október 2020 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja fyrirlesturinn "Styrkurinn í mýktinni" í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 10:00. "Í zazen hugleiðslu iðkum við mjúka og opna athygli og við finnum hvernig það er að vera til akkúrat núna og leyfum því að gerast, meðtökum stundina í mýkt. Í þessari mjúku og opnu athygli finnum við styrk lífsins, okkar eigin styrk til að takast á við allt það sem mætir okkur í daglegu lífi. Ekki síst á erfiðum tímum sem nú þegar reynir á styrk og úthald okkar allra."
Áður en fyrirlesturinn hefst á laugardaginn þá iðkum við hugleiðslu frá kl. 09:00 í 40 mínútur. En í stað þess að sitja saman að Kletthálsi eins og venjan er þá situr hver heima hjá sér. Með þessu fyrirkomulagi sýnum við í verki samfélagslega ábyrgð og um leið stuðning hvert við annað. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll. Í ljósi nýjustu frétta af COVID-19 faraldrinum og hertum aðgerðum stjórnvalda á höfuðborgarsvæðinu hefur stjórn Zen á Íslandi - Nátthaga ákveðið að dagleg iðkun okkar fari fram með notkun Zoom. En við munum sitja á sömu tímum og við erum vön að sitja uppi á Kletthálsi 1. Dagskráin verður eins og hér segir: Takið þátt með því að smella á hnappinn hér að neðan, notist við neðangreint Zoom kenni eða hlekk. Athugið breytt kenni frá því í vor og að núna í haust fór Zoom að krefjast þess að gefið væri upp lykilnúmer: Zazen @ Nátthagi Zoom kenni: 847 6507 5564 Zoom lykilnúmer: 000000 (6 núll) Zoom hlekkur: https://us02web.zoom.us/j/84765075564 Þó að hornsteinn iðkunar okkar sé að hittast og iðka saman sem Sanga þá er iðkun okkar án landamæra. Heimurinn og þú eruð eitt, það sem þú gerir fyrir sjálfan þig gerirðu fyrir heiminn líka. -Ástvaldur Zenki Djúpt gassho og okkur hlakkar til að sjá ykkur sem flest.
Kæru iðkendur hjá Nátthaga,
Með því að leita skjóls í Búdda, Dharma og Sangha stígum við til hliðar og gefum okkur á vald fjársjóðanna þriggja, sem eru endalaus uppspretta sköpunar, visku og kærleika. *** FRESTAÐ *** Þessi ákvörðun er tekin í ljósi stöðunnar á þróun COVID-19 hér á landi. Við munum fylgjast grannt með þróun mála og látum vita um leið og ákvörðun hefur verið tekin um nýjar dagsetningar. *** FRESTAÐ *** Zen á Íslandi heldur setudag næsta laugardag 26. september frá kl. 7:00 - 15:30. Það kostar kr. 3.500 fyrir félaga að taka þátt en aðrir greiða kr. 5.000. Setudagur er góð gjöf til sjálfs þín og tækifæri til að staldra við og vera betur til staðar í annasömu hversdagslífi.
*** FRESTAÐ ***
Þessi ákvörðun er tekin í ljósi stöðunnar á þróun COVID-19 hér á landi. Við munum fylgjast grannt með þróun mála og látum vita um leið og ákvörðun hefur verið tekin um nýjar dagsetningar. *** FRESTAÐ *** Iðkun zazen er grundvöllur þess sem í daglegu tali kallast núvitund (e. mindfulness) eða vakandi athygli. Með því að læra að iðka Zazen ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfa sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum. Markmið námskeiðsins er m.a.:
Kennarar á námskeiðinu eru Ástvaldur Zenki, kennari Zen á Íslandi ásamt Gyðu Myoji og Kolbeini Seido sem hafa áralanga reynslu af hugleiðsluiðkun. Hvar: Klettháls 1, önnur hæð til hægri þegar komið er upp stigann. Hvenær: Á fimmtudögum frá 24. september til 22. október frá kl. 17:30 - 19:00. Allir eru hjartanlega velkomnir í nýtt húsnæði okkar að Kletthálsi 1 og er námskeiðið óháð trúar- eða lífsskoðunum. Námskeiðið er ætlað byrjendum sem lengra komnum og öllum þeim sem þrá að lifa lífinu lifandi og með vakandi athygli. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á zen@zen.is og greiða 15.000,- kr. námskeiðsgjald inn á reikning félagsins... Kennitala: 491199-2539 Reikningsnúmer: 111-26-491199 ...eða með því að kaupa námskeiðið sem vöru í vefverslun Zen á Íslandi - Nátthaga hér á vef félagsins með því að smella á hnappinn hér að neðan: Kæra sanga, Á laugardaginn kemur 12. september kl. 10:00 verður haldinn söngufundur í nýja húsnæðinu okkar að Kletthálsi 1.
Hvað þýðir það að leita skjóls í fjársjóðunum þremur? Hvað er Sanga? Hvaða þýðingu hefur Sanga fyrir þig?
Mér finnst mjög mikilvægt að við hittumst og ræðum saman. Ég hlakka til að hitta ykkur öll. Til blessunar allrar skynveru, -Zenki Þann 1. september síðastliðinn hófst vetrariðkun Zen á Íslandi - Nátthaga og sitjum við nú aftur zazen alla daga nema sunnudaga. Þar að auki hefst nú haustdagskráin þar sem finna má vinnuiðkun, söngufund, setudaga, námskeið, leshringi, ræður og Borgarsesshin. Zen iðkun er góð gjöf til sjálfs þíns og tækifæri til að staldra við og vera betur til staðar í annasömu hversdagslífi. Þegar maður lærir fyrst að sitja zazen þá getur maður ekki lært zazen til hlýtar, í heild sinni í einu höggi. Við byrjum því á að búta zazen niður í litla bita og fylgjum þeim í ákveðinni röð: að stjórna líkamanum (choshin), að stjórna andanum (chosoku) og svo að stjórna huganum (choshin). Í Eihei-koroku skrifaði Dogen: "Í zazen er mikilvægt að sitja í réttri líkamsstöðu. Næst skaltu stjórna andanum og svo róa þig niður." DAGLEG ZEN IÐKUN Í HAUST Mánudaga kl. 17:30 - 18:50 (engin morgunseta) Zazen (30 mín), Kinhin (10 mín), Zazen (30 mín) og Kyrjun (10 mín) Þriðjudaga kl. 07:20 - 08:30 Zazen (20 mín), Kinhin (10 mín), Zazen (30 mín) og Kyrjun (10 mín) Miðvikudaga kl. 07:20 - 08:30 Zazen (20 mín), Kinhin (10 mín), Zazen (30 mín), Kyrjun (10 mín) Fimmtudaga kl. 17:30 - 18:50 (engin morgunseta) Zazen (30 mín), Kinhin (10 mín), Zazen & Heitin fjögur (40 mín) Föstudaga kl. 07:20 - 08:30 Zazen (20 mín), Kinhin (10 mín), Zazen (30 mín), Kyrjun (10 mín) Laugardaga kl. 08:00 - 09:40 Zazen (35 mín), Kinhin (10 mín), Zazen (35 mín), Kyrjun (20 mín) Hlakka til að sjá ykkur sem mest. Djúpt gassho, -Alfred Chozetsu Sonoma Mountain Zen Center stendur nú í ströngu vegna afleiðinga kórónufaraldursins. Þau hafa þurft að leggja alla starfsemi niður og þar með misst alla innkomu. Þetta er gríðarlegt áfall, eins og nærri má geta. Eins og sum ykkar vita hefur Sonoma Mountain Zen Center staðið í mikilli uppbyggingu undanfarin ár sem hefur gengið vonum framar. Nú þegar uppbyggingu er að mestu lokið og starfsemi að hefjast í nýjum húsakynnum ríður þetta reiðarslag yfir. Staðan er grafalvarleg og jafnvel ekki víst að starfsemin standist þessa ágjöf og hafa þau nú biðlað til allra sem vettlingi geta valdið um hjálp í þessum erfiðu aðstæðum. Roshi er, eins og við vitum, upphafsmaður Zen iðkunar á Íslandi og hefur hann síðastliðin 30 ár unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir okkur í Nátthaga. “At home my computer room has been transformed into Indra’s/Internet with the screen of the Heart Sutra right behind me. As I urgently plead for your help, I remember that in ancient times, temple monks and nuns would go outside the grounds to beg from house to house for alms for their survival. Perhaps this is the modern way of Takuhatsu begging, like our ancestors have practiced before us. According to Indra’s net, we are all interdependent. What we do or do not affects everyone and everything in the universe.” -Jakusho Kwong -roshi. Við hjá Zen á Íslandi höfum ákveðið að leggja til fjármagn til styrktar. Margt smátt gerir eitt stórt og nú langar mig til þess að biðla til ykkar með það hvort þið gætuð látið eitthvað af hendi rakna til styrktar bræðrum okkar og systrum í Sonoma Mountain Zen Center. Í hverfuleika sínum koma allir hlutir og fara eins og skýin á himninum. Í hverri innöndun þiggjum við lífið og með hverri útöndun gefum við það frá okkur. Þannig öndum við með öllu sem er, þannig andar alheimurinn. Iðkun okkar á sér engin takmörk og verk okkar eiga sér engin landamæri. Ég vona svo sannarlega að Sonoma Mountain Zen Center megi áfram vera iðkunar- og griðarstaður um ókomna framtíð. Styrkja má Sonoma Mountain Zen Center... ...með því að notast við Paypal (eða kreditkort): Bara smella á hnappinn: ...með því að millifæra til Zen á Íslandi - Nátthaga með skýringunni "Sonoma": kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 skýring. "Sonoma" ...með því að gera erlenda millifærslu beint til Sonoma Mountain Zen Center: Account Owner: Sonoma Mountain Zen Center Routing nr: 322271627 Account: 8842263539 Swift: CHASUS33 Bank Address: 2700 Yulupa Avenue, Santa Rosa. CA 95405, USA Djúpt gassho, Ástvaldur Zenki |
Eldra
April 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |