Á morgun, laugardaginn 9. apríl verður haldin Jukai athöfn hjá Zen á Íslandi - Nátthaga að Kletthálsi 1, 2. hæð. Það eru tveir iðkendur sem taka Jukai á morgun, en með því taka þeir lífsgildin sem sín grunngildi í lífinu, og þar með skýra afstöðu með lífinu og gegn hverskyns ofbeldi og óréttlæti. Við munum einnig halda upp á afmæli Búdda þennan laugardag, en það gerum við með því að fara upp að altarinu og lauga Búdda vatni undir kyrjun söngunnar. Báðar þessar athafnir eru blátt áfram og fallegar og benda á lífið í sinni tærustu mynd. Í von um að sjá ykkur sem flest, djúpt Gassho. Við byrjum Jukai athöfnina klukkan 10. Látum hér fylgja með kennslu úr bókinni How to Cook Your Life eftir Dōgen og Kosho Uchiyama-roshi:
"Það mun alltaf vera hellingur af hlutum sem við þurfum að gera. Við munum aldrei ná að koma lífinu, né heldur vinnunni eða bara eldhúsinu okkar, í þannig ástand að við séum bara sátt. Við getum aldrei staðið undir þeim væntinum sem við sjálf gerum. Það er alltaf eitthvað sem má betur fara. Lífið er ekki fyrirfram ákveðið og við komumst því aldrei til enda, þar sem við gætum bara sest niður og horft sátt yfir. Það eina sem gerist, þegar tíminn líður, er að við höfum betri og betri skilning á hlutunum, við sjáum lífið sífellt skýrar og geta okkar til að takast á við óvænta atburði sem koma upp verður betri og betri. Og það mun alltaf eitthvað koma upp, alltaf. Heiður himininn er sífellt að búa til ný ský. Potturinn sýður stanslaust." Þrjár djúpar beygjur. Gassho.
0 Comments
Næsta laugardag 2. apríl mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá kafla í þýðingu Brynjars Shoshin, úr bókinni "Ekkert upphaf, enginn endir" eftir Jakusho Kwong-roshi. Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest. Í bókinni segir meðal annars:
"Þegar þú iðkar setu þá geta komið upp margskonar tilfinningar. Þegar þér finnst ganga vel, þá elskarðu að iðka; þegar þér gengur ekki svo vel í zazen, þá hatarðu það, og stundum líður þér bara eins og vélmenni sem situr án þess að það hafi nein áhrif. Það getur því verið erfitt að setjast niður og halda áfram að iðka. En eftir áralanga iðkun, ákveðin í að gefast ekki upp, þá breytist setan í eina nánustu stund sem við eigum með okkur sjálfum. Ánni virkilega langar til sjávar, svo eins og Bodhidharma, snúum við okkur að veggnum og leyfum ljósinu að lýsa inn á við, í átt að uppsprettu hugans. Og þá, frá því mikla tómi sem á sama tíma er -núið- og -handan alls- þá hljóðlega uppljómumst við." Djúpt Gassho. Næstkomandi laugardag 26. mars 2022 mun Zen kennari okkar Helga Kimyo, heiðursroshi og einn af stofnendum Zen á Íslandi - Nátthaga, flytja fyrirlesturinn "Gömul saga og ný" að Kletthálsi 1. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15.
Við munum sitja hugleiðslu kl. 08.00 að Kletthálsi 1 og svo hefst fyrirlesturinn kl. 9:15. Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.
Á morgun laugardaginn 5. mars mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá kaflann "Að taka afturábak skrefið" í þýðingu Brynjars Shoshin, úr bókinni "Ekkert upphaf, enginn endir" eftir Jakusho Kwong-roshi. Í kaflanum segir meðal annars:
Við byrjum dagskrá laugardagsins með Zazen hugleiðsluiðkun kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Djúpt Gassho. Næstkomandi laugardag 12. febrúar 2022 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja darmaræðuna "Lífið (með stórum staf)" í húsnæði okkar að Kletthálsi 1, 2. hæð og í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Ræðan er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. Zenki mun tala um það hvernig Zen búddismi lítur á tilveruna og hvernig við getum fundið sátt í Lífinu (með stórum staf) jafnvel þó að við getum ekki sagt hvað það er. En hann segir meðal annars: Það er okkur mönnunum mikilvægt að vita, að útskýra allt mögulegt og ómögulegt. Við samsömum okkur því að vita. „Ég hugsa, þess vegna er ég” eins og René Descartes orðaði það. En þrátt fyrir það hefur engum tekist að segja hvað lífið er í raun og veru. Við erum því í grunninn eitthvað sem við getum ekki sagt hvað er. Ef við vitum ekki og getum ekki sagt það, hvað erum við þá? Hvað er líf og hvað er dauði? Hvað getur þetta verið? Hvernig get ég verið eitthvað sem ég get ekki sagt hvað er? -Zenki Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.
Á morgun laugardaginn 5. febrúar mun Zen á Íslandi - Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við lesum þá kaflann "Traust á ykkar upprunalega eðli" í þýðingu Brynjars Shoshin, úr bókinni "Ekkert upphaf, enginn endir" eftir Jakusho Kwong-roshi. Í kaflanum segir meðal annars:
Við byrjum dagskrá laugardagsins með zazen, eða sitjandi hugleiðslu, kl. 08:00 en leshringurinn er svo frá kl. 10:15 - 11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Djúpt Gassho. Kennari: Ástvaldur Zenki, Kennari Zen á Íslandi Hvenær: 3. - 24. febrúar Hvar: Klettháls 1, Reykjavík Tími: Fimmtudagar 17.30 - 19.00 (1 x í viku í 4 vikur) Verð: 15.000 krónur Skráning: zen@zen.is Námskeiðið er ætlað byrjendum sem lengra komnum og öllum þeim sem þrá að lifa lífinu lifandi og með vakandi athygli. Iðkun zazen er grundvöllur þess sem í daglegu tali kallast núvitund (e. mindfulness) eða vakandi athygli. Með því að læra að iðka Zazen ræktum við smám saman með okkur vakandi huga og meðvitund í daglegu lífi og lærum að þekkja okkur sjálf á djúpan og náinn hátt. Að þekkja sjálfa sig á þennan hátt felur í sér fræ heilunar og kennir okkur að meta lífið sem við lifum.
Markmið námskeiðsins er m.a.:
Námskeiðið kostar 15.000,- kr. og verður kennt á fimmtudögum frá kl. 17:30-19:00. Innifalið í námskeiðsgjaldi er þátttaka í allri dagskrá hjá Nátthaga á meðan námskeiðið varir og eru þátttakendur eindregið hvattir til að prófa að taka þátt í daglegri iðkun samkvæmt dagskrá. Þátttakendum er einnig velkomið að taka þátt í fræðsluviðburðum sem boðið er upp á: leshringjum, darmaræðum og mörgu fleiru. Kennari á námskeiðinu eru Ástvaldur Zenki, kennari Zen á Íslandi. En hann hefur stundað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandaríska Zen-meistarans, og stofnanda Zen á Íslandi - Nátthaga, Jakusho Kwong Roshi síðan 1998 og hefur farið árlega til Sonoma Mountain Zen Center í Kaliforníu þar sem Kwong Roshi býr. Ástvaldur Zenki hefur auk þess fengið þjálfun í Japan árið 2016 og 2019 og hlaut í kjölfarið vígslu í tveimur höfuðklaustrum Sótó Zen búddismans í Japan: Sojiji og Eiheiji. Zenki er skráður og viðurkenndur prestur og kennari í hinni japönsku Sótó Zen hefð og hlaut þar að auki dharma transmission frá Kwong Roshi árið 2018. Í slíkri athöfn afhendir kennari kennsluna til nemanda síns eins og það hefur verið gert í meira en 2500 ár. Allir eru hjartanlega velkomnir og er námskeiðið óháð trúar- eða lífsskoðunum. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á zen@zen.is og greiða 15.000,- kr. námskeiðsgjald inn á reikning félagsins:
Djúpt Gassho.
Djúpt gassho og okkur hlakkar til að sjá ykkur sem flest uppi á Kletthálsi.
Zoom hlekkur: https://us02web.zoom.us/j/84765075564 "Þó að hornsteinn iðkunar okkar sé að hittast og iðka saman sem Sanga þá er iðkun okkar án landamæra. Heimurinn og þú eruð eitt, það sem þú gerir fyrir sjálfan þig gerirðu fyrir heiminn líka." -Ástvaldur Zenki Djúpt gassho og okkur hlakkar til að sjá ykkur sem flest.
Næstkomandi laugardag 8. janúar 2022 mun Zen kennari okkar Ástvaldur Zenki flytja darmaræðuna "Lífið er hjartans mál" í beinu streymi á fésbókarsíðu Zen á Íslandi - Nátthaga. Ræðan er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15. "Ég sit hljóður, geri ekki neitt, vorið kemur og grasið vex af sjálfu sér" orti japanska ljóðskáldið Matsuo Basho. Ástvaldur Zenki segir: "Við mennirnir erum oftast of uppteknir af okkar eigin málum og hugðarefnum til að heyra tungumál hjartans sem talar þó til okkar öllum stundum. Þau okkar sem hafa setið hljóð í þögninni og orðið eitt með lífinu, skynja það djúplega að tungumál hjartans er skýrt og tært á sama tíma og það fæst ekki skilið. Lífið er svo sannarlega hjartans mál sem kemur okkur öllum við. Við ættum að staldra við og leggja við hlustir." Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.
|
Eldra
April 2024
HöfundurZen á Íslandi Efni |
Zen á Íslandi | Fréttir og tilkynningar |
Vertu vinur okkar á Facebook
|
Félag
Zen á Íslandi-Nátthagi kt. 491199-2539 |
Bankareikningur
kt. 491199-2539 reikn. 111-26-491199 |